Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1935, Page 44

Kirkjuritið - 01.01.1935, Page 44
32 Magnús Jónsson: Kirkjuritiö. eittlivert mjúkt efni. En milli þessara híbýla, teygðusl rifjasúlurnar frá gólfi. Til vinstri var súlnaröð. Súlurn- ar eru langt hver frá annari og virðast ótrúlega grann- vaxnar til þess að bera fjallþakið uppi. Ep sú súlan, sem næst er, reynist við nánari athugun vera ummáls eins og laglegt íbúðarhús, og þannig eru þær allar. Það er hæðin og vegalengdin, sem veldur því, að þessar súl- ur sýnast grannar. Eins og tröllauknir trjábolir, vaxa þær upp frá gólfinu, og kvísla rifjunum í bogana og hvelfingarnar uppi í hæðunum. Það er langur spölur eftir þessum hamragöngum, lík- lega framt að 100 föðmum. Og brátt opnast útsýni i aðrar áttir, inn í ný hamragöng. Og nú er þetla liús ekki lengur hrúga af húsum, heldur einn samfeldur geimur, hátt til lofts og' vítt til veggja, dýrðlegt musteri, ótrúlegt listaverk, stórbrotið og þó blitt, voldugt og verndandi, eins og sjálf hin mikla móðir, kirkjan. Arið 1401 ákvað klerkaráðið i Sevilla, að reisa svo stóra og veglega kirkju, að aldrei yrði fram úr farið. Önnur saga segir, að ráðið hafi ákveðið að reisa svo slóra kirkju, að allir héldu að þeir væri orðnir vitskert- ir. Hvorugt þetta tókst. En þegar búið var að vinna að þessu í full 100 ár, eða árið 1506, var þarna risin frá grunni heimsins mesta kirkja, og enn hefir engin gotn- esk kirkja verið reist stærri. En fullmikið höfðu menn færst í fang', því að fimm árum síðar hrundi eitt hvolfþakið, og tók átta ár að endurreisa það. Síðan liafa hvað eflir annað hrunið spildur úr hvelfingunum í jarðskjálftum. En jafnóðum er gert við það, og súlunum miklu hefir ekkert getað grandað. En það, sem dregur úr heildarsvip kirkjunnar að inn- an, er kór sá, sem reistur hefir verið h. u. b. í miðri kirkjunni. Kór þessi, eða prestakirkja, er hlaðin svo miklu skrauti og dýrgripum, að sjálfsagt væri margra

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.