Kirkjuritið - 01.01.1935, Qupperneq 69
Kirkjuritið,
ERLENDAR BÆKUR
sendar til umsagnar.
..Dansk Kirkeliv medens Tiderne skifter“. Redigeret af Johs.
Nordentoft. Advent 1934. — G. E. C. Gads Forlag. Köbenhavn
Í934. — 159 bls. —
i þessum árgangi kirkjuritsins danska er sálmaskáldsins
Thonias Kingo minst ítarlega, bæði með minningarljóðum og
langri grein um sáimakveðskap hans. Þá koma 5 greinar um
nutiðarástand og hag dönsku kirkjunnar, hver annari eftir-
tektarverðari. Hin fyrsta er eftir Henry Ussing stiftprófast og
heitir: ,,Til Forstaaelse af vor Tids religiöse UdviklingÖnnur
er eftir Johs. Götzsche biskup og nefnist: „Skumring eller Grg
for Kirken". Hin þriðja: „De döde Sogne, de tomme Kirker“,
er eftir H. Skjöt-Pedersen sóknarprest. Hin fjórða: „Fra de
orbejdslöses Verden“, eftir Aage Falk Hansen, en hin fimta:
•>Af Aarets Kirkehistorie", eftir prestinn W. Westergaard Mad-
sen. Allar eru ritgjörðir þessar vel ritaðar og lærdómsríkar,
einnig fyrir oss. — Þá koma minningargreinar, með ágætum
'nyndum, um merkustu menn dönsku kirkjunnar, er önduðust
a liðnu ári. Meðal þeirra eru Harald Ostenfeld biskup, er and-
aðist 24. okt. 1934., og presturinn og rithöfundurinn C. C. ,/.
■^sschenfeldt-Hansen, er dó 27. marz 1934. Báðum þessum
merku mönnum áttum vér margt gott upp að unna og er því
skylt ao minnast þeirra með þakklæti. Ostenfeld biskup unni
landi voru og sýndi liug sinn til þjóðar vorrar i verkinu sem
formaður félagsskaparins „Dansk-islandsk Kirkesag". — Sjald-
an finst mér þetta danska kirkjurit hafi átt eins mikið erindi
til vor eins og nú.
Ingibjörg Olafsson: „Thorkil paa Bakki. Fortællinger og Til-
dragelser". — De unges Forlag. Aarhus 1934. — 130 bls.
Bók þessi kom út nokkru fyrir hátiðir og hefir efalaust verið
lesin um jólin á fjöldamörgum heimilum, ekki aðeins í Dan-
mórku, þar sem bókin er gefin út, heldur víða á Norðurlönd-
nm. Því að höfundur hennar er að góðu kunn meðal kristin-
dómsvina um öll Norðurlönd. Með starfsemi sinni fyrir K. F.