Kirkjuritið - 01.05.1936, Síða 4

Kirkjuritið - 01.05.1936, Síða 4
178 Stanley Jones: Kirkjuritið. Fagnaðarár lians boðaði það, að veröldin skyldi byrja nýtt líf, bygt á réttlæti, jöfnuði og bræðralagi. Nýtt upp- liaf, fagnaðarár um alla jörð. Það má lita á mannkynið frá tvennskonar sjónarmiði. Örlög þess séu bundin við upplag og arfgengi, kynfestu og kynfylgju. Framtíðarvonir þess byggist á því að koma upp góðum kynstofni, þótt þær eigi að sönnu liarla langt í land. Eða þá að félagslegar aðstæður kynslóð eftir kynslóð valdi meira um mannamun en ættgengið. Og það reynist réttara. Enginn kynflokkur liefir baldið að staðaldri yfirburðum yfir annan. Þeir hefjast og bníga á víxl. 1 því sambandi má minna á ummæli Serviusar rómverska um engil-saxneska ættstofninn: „Heimskustu og ljótustu þrælarnir á sölutorginu eru þeir frá Bret- landi“. Þegar félagslegar aðstæður breytast, stjórnarskipun, efnahagur, loftslag, siðferðisbugmyndir o. s. frv., þá breytast jafnframt einstaklingar og þjóðir, og breyting- in fer eftir því, hvernig þeir bregðast við kringumstæð- unum. Lítum t. d. á Japani. Fyrir 50 árum vóru þeir svo bundnir við venjur og fræði fyrri tíma, að ekkert virt- ist mulidu geta komið þeim úr þessum skorðum. En nú eru þeir orðnir allir aðrir menn. Þeir bafa lært listir og vísindi Veslurlanda. Ilvað liefir breytt þeim? Sama blóð rennur þeim í æðum sem fyrri kynslóðum. Breytt félagsskipun hjá þeim befir vakið þeim nýjar hugsjónir, og viðhorfið við þeim hefir ummyndað þjóðina á manns- aldri. Eða Tyrkland. Árið 1920 virtist þjóðin samgróin liðn- um öldum Islams. Nú bálfum öðrum áratug síðar er liún orðin ný þjóð, með nýjum bug, nýjum þrótti og' nýju marki fyrir augum. Sama blóð rennur þeim í æðum sem fyrri kynslóðum. En þeim eru vaktar nýjar liugsjónir, sem þeir beina lífi sínu eftir. „Sjúklingur Evrópu“ er orðinn ungur og öflugur.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.