Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1936, Blaðsíða 41

Kirkjuritið - 01.05.1936, Blaðsíða 41
Kirkjuritið. ERLENDAR FRÉTTIR. Frá Svíþjóð. Sœnsku kirkjunni eykst nú djörfung og þróttur. Hún leggur njeiri áherzlu en áður á hjálpræðisboðskap sinn, en ininni á ytra form. Kristnir jafnaðarmenn sækja fast á, aS stefnuskrá flokks þeirra verSi endurskoðuS og henni breytt þannig, að sjónarmiðs kristindómsins gæti þar meira en áður. Oxfordhreyfingin hefir ekki breiðst út nema að litlu leyti mið- að við Noreg og Danmörku, hún hefir þó haft talsverð áhrif á ýmsa presta og mentaða leikmenn. Norðan til í landinu hefir veriS á ferðinni ofsafengin vakningastefna, sem ungur Finni, Toivo Korpela að nafni, hefir gjörst brautryðjandi fyrir. En öld- urnar eru aftur að lægja, og er það vel, þvi að stefnan er óheil- brigð. Kirkjan lætur yfirleitt vandamál þjóðfélagsins mjög til sin taka. Hún berst einhuga gegn „löghelguðum barnamorðum", eins og komist er að orði og talið að muni leiða til „sjálfsmorðs sænsku þjóðarinnar“. Margir læknar hafa tekið í sama streng og lýst því yfir, að löggjöf um fóstureyðingar verði ekki reist nema á siö- gæðisgrundvelli. Baráttan gegn sorpritum hefir einnig verið hörð, og standa ungir menn í fylkingarbrjósti. Um 1200 lesflokkar, 5— 000 bókaverðir, alls 150000 manns hafa bundist samtökum til að varna því, að slík rit verði keypt. Þá er merkilegt starf unnið að endurskoðun sálmabókarinnar, bættum kirkjusöng og kirkjulöggjöf. Tveir nýir biskupar hafa verið skipaðir í stað þeirra Danells hiskups i Skara og Eiriks Aureliusar biskups í Linköbing, sem lézt á liðnu ári. Ljunggren dómkirkjuprestur í Gautaborg verður eftir- maður hins fyrnefnda, en Tor Andrae prófessor í Uppsölum hins siðarnefnda. Frá Þýzkalandi. Játningakirkjunni þýzku hefir að vissu leyti veitt betur í viður- eigninni við ríkisvaldið, enda liefir hún talið það köllun sína að sanna, að andi Krists væri sterkari en andi Nazismans. Hún hefir barist ósleitulega við heiðnina í þjóðlifinu, Þegar prestarnir ætl-

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.