Kirkjuritið - 01.05.1936, Page 26

Kirkjuritið - 01.05.1936, Page 26
200 Magnús Jónsson: Kirkjuritið. andanum. Og fvrir kraft trúarinnar getur nú maðnrinn komist i svo náið og svo raunverulegt samfélag við Krist, að hann beinlinis deyi með honum frá syndinni og rísi upp með honum til andlegs lífs, þar sem syndin liefir mist vald sitt. Páll orðar þetta meira að segja svo: Ég lifi, þó ekki framar ég, heldur lifir Kristur í mér. Það er ekki lengur Páll, sem lifir, heldur Kristur. Svona örugg var vissa Iians, svona sterk tilfinning hans fvrir hinu nýja lífi, sem hann hafði öðlast fyrir trúna. Hann orðar þetta líka á þann hátt, að Kristur sé hinn annar Adam, liinn fyrsti maður og frumfaðir alveg nýs mannkyns, þess mann- k}'ns, sem hefir dáið og risið npp með Kristi, og er því ekki háð syndinni. Jóhannes dregur þennan sannleika fram með líking- unni um endurfæðing mannsins. í hans augum er þessi viðburður svo gagnger, að honum verður ekki líkt við neitt annað en það, að maðurinn fæðist að nýju, fæðist af Guði fvrir trúna og hennar kraft. Það þarf nú væntanlega ekki að eyða neinum orðum að því, hvert er samhand trúarinnar frá þessu sjónar- miði og siðgæðisins. Þau tvö hugtök eru vitanlega alveg óaðskiljanleg. Trúarsamfélagið við Krist felur það i sér, að það er í raun og veru Kristur, kristseðlið, sem er komið í stað mannsins, og afstaða hins nýja manns er því Krists afstaða til siðgæðisins. En þeirri afstöðu hefir frá fyrstu tímmh verið lýst með kenningunni um synd- levsi Krists. Bein afleiðing og rökrétt af þessu er því sú, að maðurinn væri, eftir dauða sinn og upprisu með Kristi, syndlaus. Og að Páll fann þetta má sjá af orðum hans, þegar hann segir: Vér, sem dóum syndinni, hvern- ig ættum vér framar að lifa í henni? Hér er þvi samband trúar og siðgæðis svo náið, að miklu frekar þarf að gera grein fyrir því, að það skuli ekki ávalt fj'lgjast að á fullkominn bátt. Hér á ekki einu

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.