Kirkjuritið - 01.05.1936, Síða 35
Kirkjuritið.
„Fjallið kemur lil Múhameds“.
209
En þjáning ef til vill þroska veldur;
og því er henni að manni beint,
að skattinn hver og einn Guði geldur
í g’ulli, er sársauki bræðir hreint.
Ef þannig háttað er þessu efni,
mun þögnin langbezt við sjúklings rúm.
Þá er oss nauðsynleg undirgefni.
Og ekki skaðsamlegt vöku húm.
Og allar mannraunir enda taka.
Hið efra blasir við skýjarof.
Og þín er búin sú þrautavaka,
er þér var, sýnist mér, treind um of.
Sú kona vinnur til góðra gjalda,
er Guði kjör sín í legu fól —
og vara munu um aldir alda,
þó eyðist jörðin og blikni sól.
Guðmundur Friðjónsson.
„FJALLIÐ KEMUR TIL MÚHAMEÐS“.
Fyrir þrettán liundruð áruni síðan ákvað Múhameð, að föstu-
dagurinn skyldi vera helgidagur trúflokks síns, og á þeim degi
skyldu þéir halda guðsþjónustur sínar. Var það rökstutt með því,
að þetta væri dagurinn, þegar Adam var skapaður, enda vildi
Múhameð fyrir alla muni ekki tilbiðja Guð á sama degi og kristnir
menn eða Gyðingar. Nú hefir tyrkneska þjóðþingið nýlega samþykt
lög þess efnis, að sunnudagurinn skuli vera hvíldardagur þeirra.
Sömu lög ákveða, að 29. október slculi vera þjóðhátíðardagur
Tyrkja, en það var 29. okt. 1923, sem Tyrkland varð lýðveldi.
II. K.