Kirkjuritið - 01.08.1939, Side 8
222
F. H.: Vígslulýsing.
Ág.-Sept.
og bæn starfsmannanna um ljós og kraft af hæðum. Sú
bæn tengir starfsmennina fastar við drottin þeirra, og
hún liefir verið lífæðin í öllu því starfi kirkjunnar, sem
drotni befir orðið til dýrðar og mönnum til hjálpræðis.
Við vitum, að Guð heyrir einlægar bænir. Þessvegna
biðjum við. — Og við vitum líka, að bænin tengir saman
þá, scm sama drottin ákalla með kærleikliug hverir til
annara. Menn verða einlægari vinir og belri samverka-
menn þeirra, sem þeir biðja fyrir. Þessvegna verða fyrir-
bænir góðra manna jafnframt til þess að auka starfshug og
starfsgleði þeim, sem fyrir þá og með þeim eiga að starfa
í drottins nafni. Eins og starfsmennirnir þarfnast fyrst
og fremst hjálpar Guðs, eins er þeim líka dýrmæt samúð
kristins safnaðar.
Aldrei verður of vel brýnt fyrir kristnu fólki skylda þess
til þess að biðja fyrir þeim, sem vandasömustu verkin
vinna.
Kæru slarfsbræður og kristnir söfnuðir þessa lands!
Látum bænina vera lieilagt land, er tengi oss daglega æ
fastar við drottin. Því fylgir meiri blessun en orð fá lýst.
Þá verðum við æ liæfari til að þjóna honum, og þá mun
ríki hans cflast æ meir hjá oss og um leið gæfa alþjóðar.
Drottinn Kristur! Blessa þú þjón þinn, Sigurgeir Sigurðs-
son. Lát Ijós þitt lýsa honum og iklæð liann krafti af liæð-
um. — Hjálp lionum til að elska svo þig og fagnaðarerindi
þitt, að alt líf hans sé helgað þér og störf hans megi verða
til þess að efla ríki þitt vor á meðal. — Gef honum náð
til þess að vinna það verk, er þú hefir kallað hann til, ör-
uggur og glaður í trausti til náðar þinnar, og umvef bann
og ástvini lians verndandi elsku þinni. — Blessa þú kirkju
íslands og gef henni bjarta og fagra framtíð undir liand-
leiðslu þinni.
Amen.