Kirkjuritið - 01.08.1939, Qupperneq 36
250
Prestastefnan.
Ág.-Sept.
„1. Að kosnir séu fjórir menn í nefnd, ásamt biskupi, til ]jess
að athuga, hvernig bezt mætti baga kristindómsfræðslu í skól-
um landsins eða í sambandi við þá, og ræða við kenslumála-
ráðherrann og fræðslumálastjórann um bá úrlausn þess máls, er
æskileg sé frá sjónarmiði kirkjunnar.
2. Að biskup sé beðinn að skora á alla prófasta landsins að
iiafa vakandi auga á kristindómsfræðslu barna og unglinga i
prófastsdæmum sínum og vinna að því eftir megni, að barna-
guðsþjónustum og sunnudagaskólum og kristilegu æskulýðsstarfi
verði komið þar á, sem þess er kostur.
3. Að guðfræðisdeild Háskólans sé beðin um að leggja sem
mesta alúð við undirbúning prestaefna undir kristindómsfræðslu
og sálgæzlu meðal æskulýðsins."
Seinna bættust við þessar tillögur:
„4) Prestastefnan biður Kirkjuráðið að athuga, hvort völ sé á
hæfum manni til að vinna að kristilegum æskulýðsmálum seni
leiðbeinandi, og þá hlutast til um, að hann geti starfað á því
sviði.
5) Prestastefnan skorar á fræðslumálastjórnina að hlutast til
um, að þar, sem barnaskólar verða reistir í sveitum landsins í
framtíðinni, verði þeim, með lilliti lil kristindómsfræðslunnar,
fremur valinn staður í nánd við prestssetur en annars staðar,
ef þar er eigi verri aðstaða til.“
Eftir nokkurar umræður voru tillögurnar allar samþyktar og
þessir menn kosnir í nefnd með biskupi:
Ásmundur Guðmundsson prófessor,
séra Hálfdán Helgason,
séra Ingimar Jónsson skólastjóri og
séra Þorsteinn Briem prófastur.
Þá var skorað á kenslumálaráðherra að bæta við tveimur
prestum í nýskipaða fræðslulaganefnd.
„ , , „ Þeir séra Þorsteinn Briem og séra Árni Sigurðs-
Endurskoðun „ . “ , ° ,
,, , . son fluttu sitt framsoguenndið livor um endur-
salmabokarinnar. , ,, ,,, . , „ , . ,, ,
skoðun salmabokarinnar. Að þeim loknum gat
biskup þess, að kenslumálaráðherra liefði þegar skipað 3 menn
í nýja sálmabókarnefnd: Biskup landsins, séra Hermann Hjart-
arson á Skútustöðum og séra Jakob Jónsson áður prest i Norð-
firði (nú í Vesturheimi). Væri til þess ætlast, að prestastefnan
lcysi 2 menn í viðbót i nefndina. Um málið urðu miklar uni-
ræður. Að lokum var þessi ályktun samþykt í einu hljóði:
„Prestastefnan lítur svo á, að þótt sálmabók vor væri ómetan-
leg framför frá fyrri sálmabókum, þá sé nú tími til kominn að
hefja undirbúning að endurskoðun sáimabókarinnar.