Kirkjuritið - 01.08.1939, Side 41
Kirkjuritið. Aðalfundur Prestafélags íslands.
255
Skýrsla féhirðis
Kirkjuritið
Aðalmál
síðasta
En þá hafði verið kosin
Kirkjuþing
Séra P. Helgi Hjálmarsson, féhirðir Prestafé-
lagsins, skýrði frá fjárhag þess og las upp
ársreikning fyrir 1938. Var skuld félagsins um síðustu áramót
samkvæmt honum 2110.81 kr. En síðan hafa margir gjört félag-
inu góð skil, svo að hagur þess fer batnandi. Reikningnrinn
var samþyktur í einu hljóði.
Fyrir fundinum lágu tilmæli frá ritstjóra
Kirkjuritsins þess efnis, að prófessor Magnúsi
Jónssyni yrði falið að annast ritstjórn með honum frá næstu
áramótum. Hafði ritstjórinn áður borið þessa ósk sina undir
meðstjórnarmenn sína og þeir fallist á það fyrir sill leyti að
verða við henni. Fundurinn samþykti að vísa málinu til félags-
stjórnarinnar.
fundarins var framhald á umræðum
aðalfundar um sjálfstæði kirkjunnar.
5 manna nefnd til þess að taka sjálf-
stæði kirkjunnar til gagngerðar meðferðar og undirbúa tillögur
um það efni í samráði við kirkjuráð og Prestafélagsstjórn. Hafði
nefndin nú samið „frumvarp tii laga um kirkjuþing", og var
séra Þorsteinn Briem prófastur framsögumaður hennar. Um
frumvarp þetta urðu all-miklar umræður, og var samþykt á-
lyktun á þá leið, 1) aö núverandi prófastsdæmi lialdist óbreytt
sem kjördæmi, er kjósa skal til kirkjuþings, 2) að sýnóda og
kirkjuráð haldi því valdi í innri málum kirkjunnar, sem þau nú
hafa, 3) að núverandi fyriromulag um kosningu til kirkjuráðs
haldist og 4) að biskup verði sjálfkjörinn forseti þingsins og
hafi þar atkvæðisrétt.
Séra Gísli Skúlason hafði orð fyrir nefnd
þeirri, sem kosin var á síðasta aðalfundi til
þess að gjöra tillögur um codex ethicus presta.
Eagði nefndin það til, að nokkurar breytingar yrðu gjörðar á
honum, og voru tillögurnar samþyktar í einu hljóði. Mun codex
ethicus verða endurprentaður með þessum breytingum og send-
ur öllum, sem eru i Prestafélaginu.
Séra Guðmundur Einarsson vakti máls á þvi,
að laun presta þyrftu að hækka eftir embætlis-
aldri upp í 4000 kr. á ári, og var sú skoðun hans i samræmi við
álit Prestafélagástjórnarinnar. Lagði hann til, að kosnir yrðu
þrír menn i nefnd til þess að vinna að framgangi þessa. Tillaga
hans var samþykt, og hlutu þessir menn kosningu: Séra Guð-
mundur Einarsson, séra Garðar Þorsteinsson og séra Sveinbjörn
Högnason.
Codex
ethicus presta
Launakjör presta