Kirkjuritið - 01.08.1939, Síða 50
264
Ásmundur Guðmundsson:
Ág.-Sept.
Þjóðverjum, Gyðingum og Aröbum, sem voru fúsir til að
fylgja okkur um borgina og sýna okkur alt, sem merkast
var, en við atvinnuleiðsögumennina, guidana, losnuðum við
að mestu leyti, pláguna í Austurlöndum, sem suða um
„bakshesh“, eða drykkjupeninga við bvert fótmál. Við
gengum um götur Jerúsalem innan múranna og leituð-
um uppi staðina, sem koma mest við sögu Krists og post-
ulanna. Við undruðumst það, hve mikill manufjöldi gal
rúmast á ekki stærra svæði, eu skildum það þó betur,
jægar við sáum, livernig fjölmörg hús voru reist yfir
göturnar. Hér ægði öllu saman, börnum og fullorðn-
um, hraustum og lirumum, ríkum og fátækum, Aust-
urlandabúningum og Evrópufötum, hjúpuðum andlitum
og óhjúpuðum, klyfjuðum ösnum og kindum og geit-
um. Búðir og basarar voru lilið við lilið í löngum röðum
inni i bogagöngum. Þar sló katlarinn katla sína og
skósmiður skó, rennismiðurinn rendi, klæðskerinn saum-
aði föt og tjaldgerðarmaður tjöld, húsgagnasmiðurinn
fóðraði húsgögn og trésmiðurinn telgdi við. Sumir reyktu
valnspípur eða spiluðu og tefldu, eða höfðust ekkert að.
Við komumst upp á norðurmúrinn fyrir austan Damask-
ushliðið og gengum hann á enda og nokkuð af austur-
múrnum, og úr háum turuin sáum við vel yfir borgina.
Einn morguninn skoðuðum við musteristorgið og undruð-
umst, hvað það var stórt — allmikill hluti af borgarstæð-
inu. Þar sem áður stóðu sáttmálsörkin og samfundatjald-
búðin og musteri Jahve þrjú hvert af öðru — Salómós,
Serúbabels og Heródesar - og forgarðar þeirra, gægðisl
nú gras milli steina. Hér bafði staðið maður við mann
á Krists dögum, þegar sagt er að bálf þriðja miljón manns
hafi verið á páskum í Jerúsalem. Hér voru full súlna-
göngin kringum torgið, þar sem Jesús kendi og lýðurinn
hné að lionum og hlýddi á liann. Nú var viðast autt og
á stangli litlir súlnabogar, sem helgisagnir Múhameðs-
manna eru við tengdar. Ámiðju torginu rís Ómarsmoskan,
með háu hvoll'þaki, reist í átthyrning um Móríaklettinn,