Kirkjuritið - 01.08.1939, Blaðsíða 66
280
B. O. B.: Hraungerðismótið.
Ág.-Sept.
að slíta samkomunni, en það reyndist ókleift. Heilan klukku-
tíma enn varð hann að leyfa áframhald, ef eklci lengur. — Á
eftir voru fleslir á fótum lil kl. 3, eða hver veit hvað. Fæstum
fanst víst þörf á að fara að sofa í birtu og bliðu júnínælurinnar
— eftir slíkt ævinlýri.
Næsta morgun var þó farið á fætur kl. 8, eins og á sunnudags-
morguninn, og undir eins, eftir kaffið, í kirkjuna og teknir til
altaris um 200 manns. Eftir lítið hlé flultu stutt erindi þeir Gunn-
ar Sigurjónsson cand. theol. um bænina og herra vígslubiskup
Bjarni Jónsson um Guðs orð. Eftir hádegisverð var kvennafund-
ur, en karhnennirnir notuðu víst ýmsir frí sitl til að talast við
um insta líf hjarta síns og trúarskilning og til að biðja saman.
Þá var skírt barn og haldin harnaguðsþjónusta í lautinni góðu;
liana annaðist kvenfólkið.
Seinni hluta dagsins flutti Ástráður Sigursteindórsson cand.
theol. erindi: „Er liægt að trúa á heilaga, almenna kirkju?" Þá
var svarað nokkurum spurningum um trúarleg atriði, og leysti
ólafur kristniboði mjög fallega úr spurningu um það, hvort trú-
aður maður gæti sótt veraldlegar skemtanir. Aðalatriði svarsins
var: „Elskaðu Guð — og gerðu svo það sem þú vilt“ — „en
reynslan sýnir, að margt er varasamt og ýmislegt hættulegt1'-
Endað með sluttri samveru — og sungið.
Þegar bílarnir runnu úr hlaðinu, stóð fámennur hópur í sniá-
brekku við veginn og söng um hið kristna bræðralag. „Þótt
skilji lögur lönd, ei lýð Guðs skilja höf“.
Hvert er þá álit mitt á þessd móti? Það var trúarmót. Auðvit-
að liafði það sina galla — suma í mínum auguin nokkuð alvar-
lega. Þessi mót eiga að geta bætt allverulega úr göllum sinum,
ef að samkvæmni er gætt í þeirri auðsveipni við drotlin, er ein-
kennir þau svo mjög. Ég sleppi því að ræða jietta hér.
Ég get ekki stillt mig um að geta ]iess, að Bjarni Eyjólfsson
lét svo um mælt — „af andanum“, það leyndi sér ekki, — að það
væri ekkert aðalatriði að trúa á „dogmur“ og þess háttar. Það
væri hjarta afstaðan til Jesú Krists og föðurins, sem alt væri
undir komið.
A ég að trúa bví, að ekki geti náðsl miklu víðtækari og inni-
tegri eining í íslenzku kirkjnnni en á horfðist á þessari uiulii'-
stöðu?
Hraungerðismót næsta ár ætti að verða sótt af mönnum ai
fjölbreyttari Irúarskoðunum — aðeins að hjartað hafi verið gef-
ið drotni - - eða þráin til þess sé ríkjandi í því.
• Björn 0. Björnsson.