Kirkjuritið - 01.08.1939, Side 69
Kirkjuritið.
Ó, kom þú himinblærinn blíði.
Lag: The Gospel in Song, nr. 176.
Ó, kom þú himinblærinn blíði,
þú bæna minna heita þrá,
og anda yfir lönd og lýði
með lífið sanna Guði frá.
Ó, kom með frið til þreyttra þjóða,
og þjáninganna daga stytt.
Og kom með andann Krists hinn góða.
Ó, kom með himnaríkið þitt.
Þín bíða lönd og álfur allar,
þú andinn helgi Guði frá.
Á þína hjálp og huggun kallar
öll heimsins von og dýpsta þrá.
Ó, kom með unað elsku þinnar,
og ástargjafir frelsarans,
og eyddu sjúkleik sálar minnar
í sólarlogum kærleikans.
Eg villi.st oft af vegum þínum.
Þú vakir drottinn yfir mér,
og hjálpar veikum vilja mínum,
og vefur mig að hjarta þér.
Þú ríkir jafnt í himni háum
og hjarta manns, er leitar þín.
Þú blessar lýð í býlum lágum,
á blómið smáa dýrð þín skín.
Pétur Sigurðsson.