Kirkjuritið - 01.05.1942, Side 18
152
Jón Jakobsson:
Maí.
á byrjun 6. aldarinnar. (Orðið „Scot“ er keltneskt og
þýðir: ,,Yegfarandi“). Ninian fór sem leið lá frá Cumber-
land norður yfir Solwayfjörð til Whit-horn í GallowaV
(Whithorn liggur á skaga syðst á vestanverðu Skotlandi,
milli fjarðanna Wigtown að austan og Luce að vestan).
í Whithorn bygði liann litla kirkju, þá fyrstu, sem
gnæfði á skozkri grund. Vegna þess má telja staðinn
sögufrægan frá fornri tið. Var þessi fyrsta kirkja lands-
ins kölluð „Hvíta húsið“. Whithorn varð frá byrjun
miðstöð trúboðsstarfsemi Ninians. Þaðan lágu leiðir pré-
dikarans inn í nærliggjandi héruð, svo langt og svo lengi
sem þreyttur fótur gat borið hann uppi. Til litlu, hvítu
kirkjunnar sinnar, sem stóð þarna á verði í friðsælu
heiðarlandi, kallaði Ninian heiðingja hjarðirnar, sem
enn fóru án hirðis, ósnortnar af orði Guðs. Seinna meir
rýmdi þetta musteri fyrir veglegri klausturkirkju. En
tímans tónn eirir engu. Nú sjást aðeins óljósar minjar,
rústabrot liðinna tíma, en götur liggja grónar að staðn-
um, þar sem fyrsta vag'ga skozka kristniboðsins stóð.
Annar í röð trúboða Skotlands var Palladius. Hann
kom frú Róm um miðja 4. öld til írlands, var hann
sendur þangað af andlegu yfirvöldunum þar suður til
að prédika á meðal Skota í írlandi og' uppræta heiðna
siði, er enn greru sem illgresi meðal hveitis kristninnar.
Seinna fluttist hann til Skotlands til að prédika fagn-
aðarboðskapinn þar í landi. Hann settist að í Fordun í
Meorns og starfaði þar æ síðan til dauðadags. Síðar meir,
er páfakirkjan hafði tekið völdin, var Palladius gerður
að dýrlingi, og til skamms tíma hefir nafn hans verið
tengt við hinn árlega markað, sem haldinn er í Fordun
og kallast „Paldy’s Fair“.
Columba og trúboðsmiðstöðin á Jóna.
Nafnkendasti lcristniboði Skotlands varð Columba.
Sagan hermir, að um miðja 6. öldina hafi komið bátur
búinn úr skinni, sem var þanið milli viðartága, frá ír-