Kirkjuritið - 01.03.1943, Qupperneq 22
92
Magnús Jónssón:
Marz.
ið til. Milljónir af Biblínm og Nýjatestamentum hafa
verið sótt. Ameríku biblíufélagið (mótmælenda) gefur
út 9000 Testamenti á dag, og annað félag gefur út 25000
Biblíur á viku. En þetta hrekkur naumast til þess að
fullnægja eftirspurninni.
Stjórnin hefir auk þess gefið út þrjár Biblíuútgáfur,
eina banda rómversk kaþólskum, eina lianda mótmæl-
endum og eina lianda Gyðingum.
í flotanum liefir trúarlíf hermannanna jafnan verið
meira en i landber, „Sjómaðurinn er að eðlisfari trú-
aður“, segja þeir. En aldrei liefir áhuginn verið jafn-
mikill og nú. Prestur útbjó nokkurskonar kirkjusal í her-
skipi einu, til þess að hafa nóg rúm. Þegar í fyrstu
g'uðsþjónustunni liófu sjóliðarnir samskot til þess að
prýða þessa „kirkju“ sina skutu saman 200 dölum fyrir
altaristöflu.
í einni herdeild vestur í landi komu 100 liermenn til
prests síns og báðu um biskupan. Heræfingar voru á-
kaflega strangar og erfiðar. En allir þessir 100 hermenn
sóttu kristindómsfræðsluna stöðugt og' luku prófi.
Snenuna um vorið fór svo fram liin hátíðlega athöfn,
þar sem þessir 100 liermenn voru konfirmeraðir.
Hermaður í stórskotaliðssveit særðist liættulega. Hin-
ir hermennirnir óskuðu þess, að prastur þeirra bæði fyr-
ir honum, og' hver einasti maður liersveitarinnar tók
þátt í þessari liátíðlegu bænai’athöfn.
Allt eru þetta dæmi valin af liandahófi. Þau mætti
margfalda.
4. I síðasta ófriði var ekki laust við, að litið væri á
hei’pi'estana eins og nokkui’skonar finxmta lijól á vagni.
Þeir voru hafðir til þess að koma á allskonar samkom-
um og standa fyrir félagsskap, íþróttamótunx, söng-
skemmtunum og öðru þessháttar. Þeir geynxdu bóka-
söfn herdeildanna, önnnðust póst og sáu um lii-essing-