Kirkjuritið - 01.03.1943, Page 25

Kirkjuritið - 01.03.1943, Page 25
Kirkjuritið. Trúaráhugi í her Bandaríkjanna. 95 ur að útvega afdrep, þar sem heimaðurinn getur hitt unnustuna sína, ef liún kemur í heimsókn, og útvega leyfi íoreldra til þess, að hermaðurinn megi kvænast. Og þeg- ar leyfið er fengið, vígir hann þau í heilag't hjónaband. Allar sorgarfréttir verður hann að bera á milli. Hann verður að vera mikill sálarfræðingur. Flotaforingi einn sagði: „Presturinn er hoðandi Guðs °rðs og' svo — og svo þetta, sem mennirnir geta ekki verið án“. Þegar skip eru í orustu, er presturinn á sama stað og skipslæknarnir. Þar verður hann að veita hverjum uianni, sem þess óskar, prestsþjónustu, livort sem þeir eru trúbræður hans eða ekki. Herprestarnir fá nákvæma fræðslu um þetta vandamál. Setjum svo, að herpresturinn sé mótmælandi eða Gyð- ingur, en hermaðurinn sé katólskur. Þá segir prestur- inn: „Ég er ekki katólskur prestur, en „faðirinn“, sem er hér ekki við, bað mig að lesa fyrir þig þessa bæn úr bænabókinni. Viltu hafa hana eftir mér?--------Og svo bað „faðirinn“ mig að fá þér þetta talnaband. Hann hefir blessað það lianda þér. Þú mátt hafa það og mátt vera viss um, að blessun hans nær til þin“. Herprestarnir liafa fengið eldskírn sína í þessum ó- friði, bæði í Pearl Harhour, Bataan og Corregidor, og trú þeirra liefir staðizt eldraunina. Þeir hafa sýnt ein- slakt hugrekki, stillingu og skyldurækni. Tveir her- prestar féllu í Pearl Ilarbour. Annar þeirra, A. H. Schmitt að nafni, var að flyta morgunbænir á herskip- inu Oklahoma, þegar japanskt tundurskeyti hæfði skip- ið. Skipið valt á liliðina. En presturinn lét sér hvergi bregða, heldur hjálpaði hverjum liermanninum eftir annan að komast undan — þar til ofseint var orðið fyrir hann sjálfan að bjargast. Þegar mest ósköpin gengu á af skothrið Japana á Bataan, sagði undirforingi einn: „í þessum grenjasmug-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.