Kirkjuritið - 01.03.1943, Page 36

Kirkjuritið - 01.03.1943, Page 36
Marz. Sveitadúkur Veróníku helgu. Þýðing úr „Kristus legender“ eftir Selmu Lagerlöf. — Stytt. Fástina, gömul fóstra Tíberíusar keisara yfir Rómaveldi, er að koma til Jerusalem til þess að leita honum lækningar. Hann er þjáður af hryllilegum og ólæknandi sjúkdómi, og eina von hennar er sú, að liún geti náð fundi spámannsins frá Nazaret og ferigið liarin með sér til þess að lækna keisarann. Þegar hún kemur inn í borgina, sér liún að eitthvað óvenjulegt er að ger- ast; göturnar eru fullar af fólki, sem ryðst áfram, svo að hún og förunautar hennar verða að stiga af baki og reyna að komast áleiðis fótgángandi. Eftir stutta stund sjá jjau, hvað um er að vera. Það ér verið að fara með fanga til krossfestingar. Fremst- ir eru ungir menn, sem æpa af tilhlökkun yfir því að eiga að fó ao sjá aftöi.u. Næstir ganga tignir menn i síðskikkjum, þá grátn- ar konur og flokkur af fátækum mönnum og bágstöddum, sem hrópa hástöfum á lijálp til Guðs. Siðan koma hermenn á hest- baki og aðrir á eftir þeim með fangann á milli sín. Þeir hafa lagt þungan kross á herðar honum, og hann dregst áfram með hann veikum burðum. Hann lýtur svo höfði, að enginn sér í andlit honum. Fástina horfir á þessa þungu krossgöngu. Hana furðar á því, að sakamaðurinn skuli vera í purpurakápu og að þyrnisveig hafi verið þrýst niður á liöfuð honum. „Hvaða mað- ur er þetta?“ spyr hún. Maður, sem stendur við hlið henni, svarar: „Það er maður, sem þóttist vera keisari“. En nú hnígur liann tií jarðar undir krossinum. Konurnar ætla að hlaupa til og hjálpa honum, en hermennirnir bregða sverðum og verja þeim það. Þeir reyna að reka hann á fætur, en hann getur ekki staðið upp. Loksins létta þeir af honum krossinum. Þá lítur hann upp, og Fástína gamla getur séð i andlit honum. 'Blóðdrop- ar hníga niður frá enni honum, liárið er storkið af blóði og svita. Hann hefir munninn fast aftur, en varirnar skjálfa, eins og liann sé að verjast hljóðum. Augun stara full af tárum og eru eins og sloknuð af þreytu og kvöl. En bak við þessa liálfliðnu ásjónu sér Fóstína eins og í sýn frítt og fölt andlit með ljómandi tign- arsvip og ástúðlegt bros á vörum, og liún finnur allt i einu til sárrar sorgar yfir örlögum og eymd þessa ókunna manns. „Æ, hvernig hafa þeir farið með þig, veslings maður“, hrópar hún, gengur í óttina til lians, og augun fyllast tárum. Það er eins og hjarta liennar sé komið að því að bresta af meðaumkun. Hún

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.