Kirkjuritið - 01.06.1946, Qupperneq 39
Kirkjuritið.
Prestastefnan.
221
ngl starf meðal hinna ungu, þar sem kirkjan gangi ekki
fi'am hjá neinum. —
Hvar á að taka þessa menn. Því er til að svara — að
það hefir ekki skort umsækjendur um prestaköllin hér
í bænum. Og ef um það er að ræða, að annaðhvort verði
að vera prestslaust í fjölmenninu eða fámenninu, þá
getum vcr ekki neitað því, að hætturnar á vegi hinna
Ungu eru mestar þar, sem fólkið er flest. Eni með auknu
starfi, koma nýir menn.
í dag eins og alla daga — gildir það að starfa. Eng-
lnn dagur má líða í lifi voru án þess, að vér leggjum
fram krafta vora í þjónustu hinna heilögu hugsjóna,
er vér höfum vigt oss og lif vort til.
Hér á prestastefnunni mun um fram allt verða rætt
UIn, hvern þátt kirkjan getur átt í því, að framtíð allra
barna íslands verði björt og fögur — og þjóðin farsæl
Þjóð.
Verum eijt í bróðurelskunni.
Verum allir sem einn maður í bæn til Guðs um að
bjálpa oss til áð ráða fram úr vandamálum kirkju
vorrar.
I bans nafni göngurn vér til starfa:
Það, er vinna vill þín kirkja,
virztu, Guð, af náð að styrkja.
^ firlitsskýrsla
biskups.
Þá vil ég leyfa mér að geta hinna helztu viðburða
i kirkjulífi íslantls og gefa stutt yfirlit yfir störf
og hag kirkjunnar á hinu liðna synodusári.
hr ])ess þá fyrst að geta, að úr hópi prestvígðra ntanna eigum
ver a bak að sjá fjórum bræðrum vorum, ])ar af einum þjónandi
Presti, séra Hólmgrimi Jósefs-syni á Raufarhöfn, er andaðist hinn
h'- þ. m. hér i Reykjavik eftir stutta legu, aðeins rúmlega fert-
lJgur að aldri.
^éra Hóhngrímur var fæddur að Ormarslóni við Þistilfjörð í N.-
Þingeyjarsýslu hinn 12. april 1906. Foreldrar hans voru Jósef
Kristjánsson bóndi og kona hans Halldóra Þorgrímsdóttir. Hann
kiuk stúdentsprófi vorið 1931 og embættisprófi í guðfræði við