Kirkjuritið - 01.06.1946, Page 40
222
Prestastefnan.
Júní-Júlí.
Háskólann tiér 193(S. Tók vígslu 1 (>. ágúst sama ár sem settur
prestur í Skeggjastaöaprestakalli í N.-Múlaprófastsdæmi, og
veitt þaö brauö frá fardögum 1938. Skipaður prestur í Sval-
barðsþingaprestakalli árið 1942, að afstaðinni lögmætri kosn-
ingu, en var búsettur á Raufarhöfn. Hann var kvæntur Svanhvít
Pétursdóttur frá Reyðarfirði, og lifir hún mann sinn ásamt
fimm börnum þeirra ungum.
Séra Hólmgrímur var hógvær maður og ljúfur í umgengni,
vinsæll af sóknarbörnum sinum, einlægur trúmaður og dreng-
ur liinn bezti.
Fyrir hönd okkar allra og kirkjunnar í heild flyt ég honum
þakkir fyrir unnin störf, um leið og ég votta ekkju lians og ung-
um börnum innilega samúð og hluttekning.
Af fyrverandi sóknarprestum liafa liessir látizt á árinu.
Séra Halldór Bjarnarson, f. prestur að Prcstshólum. Hann and-
aðist í Reykjavík hinn 19. september s.l.
Hann var fæddur hinn 1. nóv. 1855 að Eyjólfsstöðum á Völlurn
í S.-Múlasýslu, sonur Björns umboðsmanns Skúlasonar og konn
hans Bergljótar Sigurðardóttur. Stúdent 1882 og útskrifaður úr
Prestaskólanum í Reykjavík árið 1884. Hinn 14. sept. s. á. vígð-
ist hann til Prestlióla og noklmi siðar skipaður prófastur í N.-
Þingeyjarprófastsdæmi 1889—1897. Leystur frá embætti 1897—
1901, en þá veittir Presthólar að nýju. Árið 1911 varð hann
jafnframt prestur i Skinnastaðarprestakalli, er Presthólakall
var sameinað Skinnastaðarprestakalli. Fékk lausn frá prestsskap
frá fardögum 1926 og dvaldi í Reykjavík hin siðari ár. Hann
var ókvæntur.
Séra Halldór var á ýmsa lund sérkennilegur maður, og stóð
um liann nokkur styrr á stundum, en trygglyndur þar sem
hann tók því og raungóður ættingjum og vinum.
Séra Kjartan Kjartansson, f. preslur að Staðarstað, lézt í
Reykjavík hinn 1. nóvember s.l. Hann var fæddur 27. marz 1868
að Ytri-Skógum undir Eyjafjöllum, sonur séra Kjartans Jóns-
sonar og konu lians Ragnhildar Gisladóttur. Stúdentsprófi lauk
liann árið 1890 og útskrifaðist úr Prestaskólanum í Reykjavík
1892. Vígðist 30. apríl 1893 til Staðarprestakalls í Grunnavík og
var þar prestur um skeið. Á árunum 1917—18 þjónaði hann
Sandfellsprestakalli í Öræfum, en lét þá af prestsstarfi um hrið.
Árið 1922 var honum veittur Staðarstaður á Snæfellsnesi, og
lijónaði hann því kalli síðan, unz hann fékk lausn frá prests-
skap í fardögum 1937.
Séra Kjartan kvæntist árið 1892 Kristínu Brynjólfsdóttur, prests
í Vestmannaeyjum, en hún andaðist árið 1918. Síðari kona hans