Kirkjuritið - 01.06.1946, Qupperneq 47
Kirkjuritið.
Prestastefnan.
229
cru bæði reist fyrir frábæran dugnað og áhuga einstakra manna.
^oðmúlastaðakapelluna liefir Sigmundur Sveinsson í Reykjavik
látið byggja, en Miklaholtskirkjan er endurbygð einkum fyrir
forgöngu Kristjáns Einarssonar framkvæmdarstjóra í Reykjavík.
Smíði Laugarneskirkjii í Reykjavík er nú langt komið, og verð-
ur hún hið vandaðasta og prýðilegasta guðshús. Hafin er nýlega
bygging Hallgrímskirkju á Skólavörðuhæð, og innan skainms
mun verða hafizt handa um byggingu Neskirkju í Reykjavík.
Til bygging'ar nýrra prestseturslmsa eru veittar á fjárlögum
bessa árs kr. 650 jnis., þar af 150 þúsund til prestsseturshúss á
Kvanneyri, er raunverulega átti að vera búið að reisa, en fram-
kvæmd hefir dregizt til þessa. Til endurbóta á eldri prestssetr-
um eru veittar kr. 200 þús.
Þrátt fvrir þessi fjárframlög mun þó eigi verða unnt að reisa
1 ár jafn mörg prestsseturshús og síðastliðið ár. Veldur þar um
annarsvegar sívaxandi hækkun byggingarkostnaðar, en hins-
yegar það, að til ])ess að geta fullgert þau hús, sem þegar eru
1 smíðum, mun sennilega þurfa að skerða fjárveitingu þessa árs
að einhverju leyti. Þau prestseturshús, sem nú er verið að Ijúka
smíði á, eru: Djarnanes, Ólafsvík, Torfastaðir, Hvammur,
Kvennabrekka, Miklibær, Valþjófsstaður og prestssetur í Reykja-
vik.
A þessu sumri hefir kirkjustjórnin ákveðið að láta hefja bygg-
*ogu prestssetursliúsa á þessum stöðum:
1. Hvanneijri í Rorgarfirði.
2. Hálsi í Fnjóskadal.
3. Barði í Fljótum.
4. Desjarmýri i Borgarfirði.
Ennfremur munu svo iátnar fara fram nauðsynlegar aðgerð-
lr ‘l el(4ri prestsseturshúsum, eftir því sem fjárveiting lirekk-
»r til.
Eins og ég gat um á synodus í fyrra, voru ])á, í sambandi við
ramkvæmd hiiina nýju launalaga, ýms atriði varðandi hag
Þrestastéttarinnar, er kirkjustjórnin þá eigi hafði tekið ákvörð-
lIn um> °g ias ég yður þá bréf mitt til kirkjumálaráðuneytisins
tlags. 5. apríl 1945 varðandi þau mál.
Þau atriði, sem einkum hafa komið til álita í þessu sambandi,
eru;
1.
2.
3.
Embættiskostnaður prestanna.
^fgjald af prestsseturshúsunum.
Mat á prestssetursjörðum og heimatekjum presta.