Kirkjuritið - 01.06.1946, Blaðsíða 49
KirkjuritiÖ.
Prestastefnan.
231
Allt ber þetta gleðilegan vott um vaxandi áhuga fólks á kirkju-
söngnum, enda er söngmálastjórinn ekki aðeins prýöilega hæf-
ur maöur í starfi sínu, heldur fullur hrennandi áhuga um allt
það, er verða megi kirkjusöngnum til fegrunar og eflingar.
Síöasta Alþingi veitti 15 þúsund krónur tii eflingar kirkju-
söng, og hefir söngmálastjóri ráöstafaö þessu fé til þess aö
koma á fót leiöbeininga- og eftirlitsstarfi meö kirkjusöngnum í
öllum prófastsdæmum landsins og ráðið til þess starfa liina
færustu og áhugasömustu menn innan prófastsdæmanna.
Þann tíma, sem söngmálastjórinn dvaldi i Reykjavík, kenndi
liann guðfræðinemum tón, iiturgiu og sálmasöng, og stunduðu
það nám tólf nemendur. Ennfremur liélt hann söngnámskeið í
“ mánuði með 8 kennaraefnum úr Kennaraskólanum og þrem
organistum.
Ennfremur kenndi Guðmundur Matthíasson organspil og tón-
ii'æði í 4 mánuði organistum utan af iandi og guðfræðinemum
úr Háskólanum. Þátttakendur voru alls 10.
Eoks voru að tilhlutun söngmálastjóra ráðnir sérstakir org-
anistar í öllum landsfjórðungum til þess að kenna, hver í sínu
umdæmi, orgelspil þeim mönnum, er takast ætla á hendur org-
anistastörf í kirkjum landsins.
liins og getið var um á synodus i fyrra, kom Sálmabókin nýja
úl vorið 1945, og liefir lnin yfirleitt lilotið góða dónia. Gert var
i'að fyrir því þegar í uppliafi, að þessi fyrsta útgáfa Sálmahók-
arinnar yrði aðeins bráðabirgðaútgáfa, og að Sálmabókin yrði
fijótlega gefin út á ný með þeim viðaukum og breytingum, sem
reynslan leiddi í ljós, að kynnu að verða æskilegar. En eigi er
°nn fullráðið, hvort núverandi sálmabókarnefnd muni starfa
afram að endurskoðun bókarinnar, eða hætt kunni að verða
mönnum i nefndina, eða í þriðja lagi að ný nefnd muni fjalia
uni það mál.
-Skipuð var á árinu þriggja manna nefnd tii þess að semja
'úðbæti við kirkjusöngbókina, og þá einkum til þess að velja
Jög við þá sálma, er teknir voru upp í nýju sálmabókina og
mgi eru til lög við í kirkjusöngsbókinni. í nefndinni eiga sæti:
Sigurður Birkis söngmálastjóri, Páll ísólfsson tónskáld og Björg-
N ‘n Huðmundsson tónskáld á Akureyri. Hefir nefnd þessi þegar
mestu gengið frá viðbæti við sálmasöngsbókina, og mun
l'ann væntanlega koma út fjölritaður innan skamms.
Kirkjuráð
ýms mál, er
íslands liélt 5 fundi á árinu, og voru þar rædd
kirkju og kristindóm varða, meðal annars var á-