Kirkjuritið - 01.06.1946, Side 63
Kirkjuritið.
Aðalfundur Prestafélags íslands
var haldinn í Háskólanum miðvikudaginn 19. júní.
Um morguninn kl. 9.30—10 fór fram guðsþjónusta í Háskóla-
kapellunni. Séra Jakob Jónsson flutti prédikun út af 2. Kor. 13,
og minntist sérstaklega aldarafmælis Menntaskólans í
Keykjavík.
Formaður félagsins, Ásmundur Guðmundsson prófessor, setti
fnndinn og stjórnaði honum, en fundarritarar voru þeir séra
l'áll Sigurðsson og séra Leó Júlíusson.
Formaður minntist látinna félagsbræðra, þeirra séra Hall-
dors Bjarnarsonar, séra Kjartans Kjartanssonar, séra Iínúts Arn-
grimssonar skólastjóra og séra Hólmgríms Jósefssonar. Því næst
!«tti liann hvatningarorð til presta um markvist samstarf á þess-
l,m miklu örlagatímum þjóðarinnar.
Þá gjörði formaður grein fyrir störfum félagsins frá því á
síðasta aðalfundi, 9.—11. sept. f. á. Er nú hafinn undirbúning-
llr að útgafu minningarrits vegna aldarafmælis Prestaskólans á
oæsta ári. Ætlazt er til, að ritið verði i tveimur þáttum. Annar
a að vera prestatal og kandídata, þeirra, sem útskrifazt hafa frá
Frestaskólanum og guðfræðideild Háskólans á árabilinu 1847—
Í947. ásamt fáeinum Iielztu æfiatriðum þeirra og myndum af
þeim. Vinnur séra Björn Magnússon dósent að samningu þess
þáttar. Hinn þáttur minningaritsins á að vera um guðfræði-
kennsluna þessi hundrað ár, og hefir séra Benjamín Kristjáns-
son á Syðra-Laugalamli verið beðinn að semja hann. Nýjar
Prestahugvekjur er verið að setja i ísafoldarprentsmiðju, og
eiga þær að koma út á þessu ári. Barnasálmar eru einnig í
prentun, önnur útgáfa. Milli aðalfunda hefir sérstök nefnd
ijallað um férmingarundirbúninginn og samband hans við
onglingafræðslu almennt, og skipa hana: Séra Guðbrand-
nr Björnsson prófastur, formaður, séra Guðmundur Einarsson
Profastur, séra Björn Magnússon dósent, séra Jón Guðnason
°g séra Jón Þorvarðsson prófastur. Kvaddi nefndin til starfa
nieð sér dr. Bjarna Jónsson vígslubiskup. Formaður skýrði enn-
fremur frá afskiftum Prestafélagsstjórnarinnar af ýmsum öðr-
um félagsmálum.
Ut af skýrslu formanns urðu noklcrar umræður, og var með-
al annars samþykkt í einu liljóði svofelld ályktun: