Kirkjuritið - 01.06.1946, Qupperneq 74
250
Fréttir.
Júní-Júli.
Cand. tlieol. Kristin Hóseasson settan prest að Rafnseyri.
Cand. tlieol. Sigurðl M. Pétursson settan prest að Breiðabólsstað
á Skógarströnd.
Kristileg mót
Jiafa verið haldin i Vatnaskógi og að Brautarhóli i Svarfaðar-
dal í sumar eins og undnfarin sumur, liið fyrnefnda seint i
júnimánuði, en hið síðarnefnda snemma í júlí. Bæði mótin voru
fjölsótt.
Leiðrétting
við skrá yfir andlegrar stéttar menn 1. maí 194C, er birtist i
síðasta hefti Kirkjuritsins.
1. Nafn séra Friðriks A. Friðrikssonar, prófasts, f. 17./6. 1891),
v. 1933, hafði fallið úr í prentuninni. Hann er sóknarprest-
ur á Húsavík og prófastur í Suður-Þingeyjarprófastsdæmi.
2. Af prestvígðum mönnum, sem ekki eru í prestsembættum,
hafa fallið úr:
Einar Pálsson á Laugarbökkum í Ölfusi, f. 24./7. 18G8, v. 1893.
Hermann Hjartarson, skólastjóri á Laugum i Suður-Þing-
eyjarsýslu, f. 21./3. 1887, v. 1915.
Sigurður Einarsson, skrifstofustjóri fræðslumálastjóra í
Reykjavík, f. 29./1 1. 1898, v. 1926.
3. Vilhjálmur .Briem var vígður 1894. (Hafði fallið úr).
Eru þá prestvígðir mcnn á umræddu timabili, sem ekki eru í
prestsembættum, 41 að tölu.
Til athugunar fyrir þann, sem siðar semur slíka skrá, vil ég
geta þess, að mér þykir fara betur á, að guðfræðideild Háskól-
ans sé talin næst á eftir vígslubiskupum, en á undan prestatal-
inu. Einnig væri fróðlegt að hafa fæðingardaga prestanna.
Einar Thorlacius.
Kirkjuritið kemur út i heftum, 1—2 í senn, alla mánuði ársins
nema ágúst og scpt. Ver.ð innan lands 15 kr. í Vesturheimi 3 doll-
arar. Gjalddagi 1. apríl. Afgreiðslu og innheimtu annast ungfrú
Elísabet Helgadóttir, Hringbraut 144, sími 4776, Reykjavik.