Kirkjuritið - 01.01.1952, Page 17

Kirkjuritið - 01.01.1952, Page 17
SÉRA STEFÁN B. KRISTINSSON 15 hollur í ráðum, heill og skýr í svörum hlutdeild þú tókst í safnaðanna kjörum. Skildir þú glöggt, að gróin jörð á vori er guðsþjónusta, tjáð í fremdarverki. Láta þú vildir vaxa' úr hverju spori, að vorsins hætti, blóm og lífsins merki. Landið þú vildir láta rækta’ og prýða, lifandi Guði’ í stóru’ og smáu hlýða. Þökk fyrir allt, sem þú úr rústum reistir. Þín rausnarverk ei Svarfdælingum gleymast. Þökk fyrir allt, sem þú úr læðing leystir, hin Ijúfu kynni enn í hjörtum geymast. Þökk fyrir allt frá liðnum, Ijúfum dögum. — Vér lútum þeim, er ræður vorum högum. Velkominn heim! — Þú fagnar fullum sigri, — til fagnaðar þíns Herra inn þú gengur. Þú skilar heilum skildi’ og björtum vigri. — Nú skipt er um, — þú mæðist ekki lengur. Þökk fyrir allt. — Nú hljóti hvíld svo væra þitt holdið þreytt í dalnum okkar kæra! Váld. V. Sncevarr.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.