Kirkjuritið - 01.01.1952, Blaðsíða 66

Kirkjuritið - 01.01.1952, Blaðsíða 66
64 KIRKJURITIÐ merkilega grein fyrir vandkvæðunum á því, er meta skal gildi játningarritanna og kveða upp úrskurð um gildi hinna spámannlegu og postullegu rita. Eru honum Ijósir bæði hinir textafræðilegu örðugleikar og eins sá ágrein- ingur, sem risið hefir og risið getur um skilning á texta, þótt hann sé ekki rengdur. Ýmsa hina mestu kennifeður og guðfræðinga kirkjunnar hefir greint á um þetta. Stund- um getur jafnvel verið ógerlegt að skera úr um, hvort einn skilningur sé réttari en annar. Um þetta færir höf. ýmis glögg dæmi. Honum er það Ijóst, að allar skýringar eru mannaverk og játningarritin geta því verið ófullkomin eins og önnur verk mannanna. En vegna elli sinnar eiga þau að halda hefð og gildi í kirkjunni, þangað til þeim er hnekkt með dómi. Hér þykir mér röksemdaleiðsla höfundarins veikust og lendir hann í vandræðum með niðurstöðu sína, sem von er til. Til dæmis telur hann upp nokkur afbrigði frá evangel- isk-lúterskum átrúnaði, sem hann hyggur að naumast mundi valda kirkjunni svipting fjárhagsaðstoðar ríkis- sjóðs, t. d. mismunandi túlkun á ummælum hinna postul- legu rita og játningarrita um eilífa útskúfun. Þ. e. hvort átt sé við kvalalíf í raunverulegum eldi, eða aðeins vonda samvizku (hvort hér eigi að taka ummæli ritanna í bók- staflegri merkingu eða líta á þau sem táknmál). Ágrein- ingur um þýðing góðverka telur hann að eigi ætti að valda hvörfum í þessu efni, né það frávik að telja, að mennirnir rísi upp í andlegum líkama fremur en holdlegum. Nú er það engum efa undirorpið, hvernig guðfræðing- ar miðaldakirkjunnar litu á þessi atriði, né hver er skiln- ingur játningarritanna í þessum efnum. Þeir trúðu á kvala- stað, þar sem allt bullaði af eldi og brennisteini og eru til hinar fjölskrúðugustu lýsingar af því frá þessum tímum. Þeir litu svo á, að menn risu upp úr gröfum sínum í hold- legum líkömum. Ein meginkenning Páls, Augustinusar og siðbótarguðfræðinganna var sú, að menn geti alls eigi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.