Kirkjuritið - 01.01.1952, Blaðsíða 43
BRÉF FRÁ SÉRA GUÐM. SVEINSSYNI
41
um tilveru þess. Hafði háskólanum jafnvel verið boðið það
til kaups, áður en Sýrlendingunum hugkvæmdist, að Am-
eríka myndi bjóða bezt.
Ameríkumenn tóku myndir af sínum handritum og sendu
þær til Ameríku til rannsóknar. Var þar rannsakað letur
og annað, sem hægt var að rannsaka eftir myndum. —
Síðar voru handritin sjálf tekin vestur. Er nú unnið að
rannsókn þeirra þar og útgáfu. Efnafræðileg rannsókn
stendur yfir, og á hún að skera úr aldri þess, sem skrif-
að er á.
Dr. Edelmann rakti því næst handritin, sem fimdizt
höfðu og fram væru komin. Háskólinn í Jerúsalem hefir
fengið: Sálmana, sem lýsa baráttunni milli Ijóssins og
uiyrkursins barna (2 strangar). Þakkarsálma (3 strang-
ar). Hluta af Daníel (1 strangi) og af Jesaja.
Ameríkumenn hafa fengið: Jesaja allan. 2 stranga, sem
lýsa sértrtúarflokki. (Ritskýringar á Habakuk). Sýnast
t>au handrit að svara til ymnanna um Ijóssins og myrk-
brsins börn. 1. Enoksbók á Aramísku. Leifar af Lameks-
bók.
Visindamenn telja, að handrit þessi hafi verið eign sér-
trúarflokks þess, sem lýst er í textunum tveimur, sem
11111 getur. — Muni hann hafa orðið fyrir ofsóknum og
því flúið og falið heilög rit sín. Hafa menn gizkað á, að
herför Pompejusar kunni að vera ástæðan til flóttans og
ofsóknanna. — Handritin eru þó vafalaust eldri. — Fund-
lzt hafa leifar af minnst 40 krukkum, en í þeim hafa hand-
ntin verið geymd. Hefir verið vel frá þeim gengið, þau
smurð og annað vlð þau gert, sem tryggði varðveizlu
þeirra (sbr. Jer. 22,14). Hver krukka hefir tekið minnst
5 6 stranga; munu strangarnir því alls hafa verið um
200, ef öll kerin hafa verið full, en líkur mæla með því.
Tveir lampar hafa fundizt í hellinum. Þeir eru hell-
enskir að uppruna og taldir vera frá því um 200 f. Kr. —
í hellinum fundust einnig menjar frá rómverska tímabil-