Kirkjuritið - 01.01.1952, Blaðsíða 60

Kirkjuritið - 01.01.1952, Blaðsíða 60
58 KIRKJURITIÐ fullu gildi í löndum, þar sem harðstjórn og skoðanakúg- un ríkir. Þá voru menn hiklaust settir í gapastokk eða drepnir „að heilags anda náð tilkallaðri“, eins og dr. Ein- ar Amórsson mun hafa oftsinnis lesið um í Alþingisbók- unum, ef þeim fórust ófimlega orð um heilaga þrenningu. En íslenzka kirkjan ræður nú ekki yfir neinum slíkum úrræðum, enda er það óvíst, hvort dygði, nema við grunn- hyggnar og ístöðulitlar sálir. Þetta kann að þykja nauð- synlegt, þegar um ytra stjórnarfar er að ræða. En um allt það, er varðar þroska og andlega heill sálnanna, er aðferðin fjarstæða tóm. Enda þótt hægt væri að kúga menn til slíkra játninga, eða láta þá samþykkja þær með vörunum, mundi lítill hugur fylgja máli. Ef allan skiln- ing brysti og dýpri sannfæring, væri trúin dauð og ekk- ert nema nafnið. Hverjum kæmi slík kirkja að gagni? Ekki löggjafan- um, ekki þjóðfélaginu, engum! Tilgangur trúarbragðanna er sáluhjálp einstaklingsins, alefling andans og efling fag- urra dyggða. Þeim tilgangi verður ekki náð með trú, sem er aðeins lagabókstafur. Trúin þarf að vera lifandi sann- færing í sálinni, kraftur, sem starfar til hjálpræðis. Hér verður því samvizkufrelsi og hugsunarfrelsi að koma til greina, ef kirkjan á að geta haft nokkra mögu- leika til að vinna það gagn, sem af henni er vænzt í þjóð- félaginu. Og ef nauðsynlegt þykir að tryggja hugsunar- frelsi í öllum öðrum efnum með stjórnarskránni, hví skyldi þetta frelsi þá vera ónauðsynlegra í þjóðkirkjunni, þar sem fjallað er um sáluhjálparefni? Vitanlega er það rétt, að þjóðfélagið getur ekki styrkt hvaða trúarflokk sem er. En þar sem embættisveiting í þjóðkirkjunni er bundin við próf í guðfræði við Háskóla Islands, ætti að vera nokkur trygging fyrir því, að ekki veljist til þess starfs alóhæfir menn. Auk þess eru prestar undir eftirliti bisk- upa, og ætti að mega treysta áliti þeirra um það betur en dómi veraldlegra valdsmanna, hvort prestur er, kenn- ingar sinnar vegna, hæfur þjónn kirkjunnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.