Kirkjuritið - 01.01.1952, Side 26

Kirkjuritið - 01.01.1952, Side 26
24 KIRKJURITIÐ Auk sinna eigin bama fóstruðu prófastshjónin allmörg börn um lengri og skemmri tíma. Heimilisins á Völlum verður lengi minnzt, sökum hollra menningarstrauma, er þaðan stöfuðu, og heilbrigðrar glað- værðar og rausnar. Það var öllum ljóst, að þar bjuggu höfðingjar í þess orðs fullkomnustu og beztu merkingu. Orð mín vil ég svo enda með því að votta hinum látna fyrirrennara mínum í embættinu þakklæti og djúpstæða virðingu fyrir ástúð og elsku, fyrir bróðurlega umönnun og fyrir það sálufélag, er við áttum saman, unz leiðir skildi. Hinn trúi og dyggi þjónn hefir verð kallaður heim til þess Guðs, er gaf hann. Eftir er oss öllum, er þekktum hann, skilin hugstæð og hugþekk minning. Þá minningu þökk- um vér öTl. Stefán Sncevarr. Biblíufrímerki var gefið út í Brazilíu 9. des. s.l. til þess að minnast allsherj- ar biblíudagsins þar í landi. Er frímerki þetta svipað og félags- merki brazilíanska biblíufélagsins, sem upp var tekið 1948, er félagið gerðist þátttakandi í allsherjar samtökum biblíufélaga. „Evangelical Christian" heitir mánaðarrit, sem gefið er út í Toronto í Canada af lú- thersku kirkjunni þar. Rit þetta er f jölbreytt að efni og vand- að að frágangi. Ó. J. Þ. Leiðréttingar. í jólabréfi séra Jónmundar, í síðasta hefti bls. 268, 11. línu að neðan, á að standa: löngun. í sama hefti hefir orðið línu- brengl í minningargrein séra Jóns Auðuns dómprófasts um séra R. Magnús Jónsson, neðarlega á bls. 304. Eiga málsgrein- amar að vera svo: Þó var menntim hans einkum fagurfræðileg. Fagrar bók- menntir las hann mikið á ýmsum tungumálum og þýddi margt, bæði af frönsku og öðrum málum. Um fræðimennsku hirti hann minna.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.