Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1956, Page 7

Kirkjuritið - 01.12.1956, Page 7
LJOS JÓLANNA 445 þú fara allt öðru vísi að. Það ert ekki þú, sem kveikir jólaljósið. Það er kveikt af Guði sjálfum. Það skín í myrkrinu. Og þú átt að taka á móti því, láta það lýsa og verma þinn eiginn hug og hrekja þaðan myrkrið og óttann. Þá fá hin ytri ljós, sem þú hefir kveikt á jólunum, nýja birtu. Ekki sízt, ef þú hefir kveikt þau af innri þörf hjartans og til þess að veita öðrum birtu og fögnuð. Með þeirri ósk og bæn, að svo megi verða, bið ég Guð að gefa á hverju heimili og í hverju hjarta gleðileg jól. SVEINN VÍKINGUB. Bréf til lesenda Kirkjuritsins. Hið íslenzka Biblíufélag er eitt af allra elztu félögum landsins, stofnað 1815. Tilgangur þess er að vinna að útbreiðslu Biblíunnar héir á landi í svo vandaðri þýðingu, sem kostur er á hverju sinni. Samkvæmt samningi við Brezka Biblíufélagið hefir það félag um mörg undanfarin ár annazt prentun Biblíunnar og Nýja testamentsins handa lands- raönnum. Nú hefir stjóm Biblíufélags vors ákveðið að taka útgáfu þessa í sínar hendur, enda ekki vansalaust að láta slíkt vera á erlendum höndum og metnaðamiál, að þessi rit séu gefin út í landinu sjálfu, svo sem og var um aldir. Hefir félagið þegar gefið út Nýja testamentið í vandaðri mynd- skreyttri útgáfu. Þessi framkvæmd kostar að sjálfsögðu allmikið fé, en ætti þó að vera til- tölulega auðveld, ef landsmenn sjálfir bindast samtökum um hana, með því að styðja og efla Biblíufélagið. Em það tilmæli Biblíufélagsstjórnarinnar, að þér vilduð styðja þetta mál raeð því að gerast félagi Biblíufélagsins og fá aðra til þess að gjöra slíkt hið sama. Árgjald er aðeins kr. 20.00 og ævifélagagjald kr. 500.00. Góðfúslega sendið nafn yðar og heimilisfang, ásamt félagsgjaldinu, til biskupsskrifstof- t^nnar. Með því styðjið þér gott málefni og leggið yðar skerf að eflingu kristninnar í landinu. F. li. stjórnar Biblíufélagsins, Ásmundur GuSmundsson.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.