Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1956, Blaðsíða 52

Kirkjuritið - 01.12.1956, Blaðsíða 52
490 KIRK JURITIÐ Taflan er 1,35 mtr. á hæð, en 1,57 á breidd. Eg hefi borið á hana línolíu, svo að hún er ljósbrún á ht. Hún er með tveimur vængjum, sem má færa fram og aftur, stendur á jivkkri fjöl. Efst yfir miðtöflunni er mynd af dúfu Andans, er svífur niður. Miðtaflan er heil fjöl, og skomar á margar myndir: Efst sést Guð Faðir sitjandi á skýjum. Kóróna er á höfði honum, og liann lyftir hægri hendi til þess að blessa. A bak við sést hin himneska Jerúsalem, turnar hennar og múrar. Þar fyrir neðan er Kristur á krossinum, en neðst við krossinn höfuðkúpa og bein, lögð í kross, táknmynd hins gamla Adams. Báðum megin krossins koma englar fljúgandi með svitadúk til þess að þerra enni hans og með kaleik til þess að safna í blóði hans. Ræningjarnir krossfestu eru skomir út, sinn hvorum megin við krossinn. Við krossinn standa þau María mey og Jóhannes postuli. Og fyrir framan þau María Magdalena og Salóme. Til vinstri ediks ker og rómverskur hermaður með Njarðarvött á reyr. Auk þess sjást tvær kindur á beit og Gyðingur, er steytir linefa að kross- inum. Til hægri em skornir út tveir rómverskir hermenn, annar með kylfu, hinn með spjót. Fremst standa þeir Nikódemus, Jósef frá Arimaþeu og æðsti presturinn. .... Enn sjást til vinstri tveir rómverskir hermenn, sem varpa teningum, og til hægri rómverskur foringi á hestbaki. Breið umgjörð er umhverfis og útskorin í homum hennar: Maðurinn, ljónið, uxinn og öminn, táknmyndir Matteusar, Markúsar, Lúkasar og Jóhannesar....... Ennfremur eru skomar í þessa umgjörð 20 kristilegar táknmyndir: Að ■ofan: 1) Lambið með sigurfánann. 2) Upphafsstafir í nafni Jesú. 3) Upphafs- stafir í Kristsnafninu. 4) Altarisbrauð á diski. 5) Altariskaleikur. Til vinstn: 1) Pentagram. 2) Harpan himneska. 3) Pelikan, sem reytir dún af bringu sér (táknar föðurkærleik Guðs). 4) Sjöarma ljósastika. 5) Alfa og Omega (fyrsti og síðasti stafurinn í gríska stafrófinu). Til hægri: 1) Lyklar himnarikis. 2) Kirkjuklukka. 3) Fuglinn Fönix á hreiðri sinu í björtu báli (tákn upp- risunnar). 4) Brennandi olíulampi (árvekni). 5) Trú, von og kærleikur. Að neðan: 1) Hveitiax og vínþrúngnagrein. 2) Kóróna Iífsins. 3) Eiromiurinn. 4) Heilagur kross. 5) Alsjáandi auga Guðs. Á vinstri væng er barndoms- saga Jesú: 1) Fæðing Jesú. 2) Flóttinn til Egyptalands. 3) Jesús 12 ara. Á hægri væng manndómssaga Jesú: 1) Skírn Jesú. 2) Brúðkaupið í Kana.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.