Kirkjuritið - 01.12.1956, Blaðsíða 8
Frans frá Assisi prédikar
fyrir fuglum himinsins
(Fioretti þ. e. SMÁBLÓM heitir lítil bók, sem lærisveinar
Frans helga frá Assisi tóku saman eftir dauða hans. Eru það
margar helgisögur úr lífi þessa einstæða manns og sumra fyrstu
lærisveina hans, sem einnig eiga sér fáa líka. Bók þessi er enn
í dag talin mest lesin allra bóka af kaþólskum mönnum, að
De Imitatione Kristi (Um eftirbreytni við Krist) eftir Thomas a
Kempis einni undanskihnni. Hér fer á eftir einn frægasti kapí-
tulinn úr Fioretti):
Hversu Frans helgi fékk það ráð af liálfu Klöru lielgu og
bróður Silvestrusi helga, að honum bæri að prédika til þess að
snúa mörgum með orði sínu, og frá því greint, að liann stofn-
aði hina þriðju reglu og prédikaði fyrir fuglunum og bauð svöl-
unum að þegfa.
Ekki var langt liðið frá afturhvarfi Frans helga, hins auð-
mjúka Drottins þjóns, þegar liann hafði safnað að sér mörgum
fylgjendum og tekið þá í reglu sína. En er hér var komið sögu,
varð hann gripinn þungum áhyggjum og var í hinum mesta vanda
um, hvað hann ætti að hafast að. Ætti hann eingöngu að helga
sig bæn og íhugun, eða ætti hann öðru hvoru að prédika jöfn-
um höndum? Girntist hann mjög að vita Guðs vilja í þessu
efni. En svo rík var hógværð hans, að honum var fyrirmunað
að líta stórum augum á sjálfan sig eða bænir sínar, og kaus hann
því að komast að niðurstöðu um mál þetta fyrir tilstuðlun bæna
annarra manna. Þess vegna kallaði hann Masseo bróður til sín
og mælti til hans á þessa lund: „Far þú á fund Klöru systur og
bjóð þú henni í nafni mínu, að hún ásamt sumum af frómustu