Kirkjuritið - 01.12.1956, Qupperneq 15
KIRKJAN OG SKÓLARNIR
453
klaustrin í kaþólskum sið ágæt menntasetur. Þá liöfðu og all-
margir prestar skóla hjá sér og bjuggu nemendur ýmist undir
latínuskólanám (í Skálholti og á Hólum), og sumir prestar út-
skrifuðu stúdenta. Segja má því, að kirkjan og prestarnir liafi
í margar aldir annazt um sérmenntun embættismanna þjóðar-
innar.
Fyrir rás viðburðanna og þróun í menningarmálum, atvinnu-
háttum o. fl., færist forusta í ýmsum málum, þegar líða fer á 19.
öldina, úr höndum kirkjunnar og til veraldlega valdsins. Hér á
landi var ekki um teljanlega togstreitu að ræða milli kirkju-
valdsins og veraldlega valdsins í sambandi við fræðslumálin,
eins og oft mun hafa átt sér stað allvíða erlendis. En það mun
mega þakka því að mestu leyti, að víðast hvar voru það einmitt
prestarnir, sem beittu sér fyrir stofnun barnaskóla og umbótum
á sviðum fræðslumálanna.
Hér að framan hefir verið drepið stuttlega á þá þróun, sem
átt hefir sér stað hér á landi í fræðslumálum landsins og þann
mikla þátt, sem kirkjan og prestarnir hafa átt í henni.
Raddir hafa heyrzt um það, að með fræðslulöggjöfinni 1907
hafi forysta í fræðslumálunum verið tekin til óþurftar frá kirkj-
unnar mönnum. Þó hafi keyrt um þverbak með skólalöggjöfinni
1946, því að með henni sé stefnt að því að afkristna landsmenn.
Misskilningur og athugunarleysi hafa valdið mestu um for-
dóma fólks á þeirri skólalöggjöf, og allmargir liafa lastað þá, er
að löggjöfinni stóðu, án þess að liafa lesið hana eða kynnt sér
meginefni hennar.
Hér skal drepið á hið helzta í skólalöggjöfinni, sem varðar lilut
kristinfræðikennslunnar í skólum, og skal þá einkum gerður
samanburður á fyrstu og síðustu fræðslulögunum, þ. e. þeim, er
samþykkt voru 1907 og 1946.
í kjölfar þeirra breytinga, sem urðu á fyrrihluta 19. aldar í
skóla- og menningarmálum nágrannaþjóðanna, fylgdu hliðstæð-
ar oskir eða kröfur um stofnun skóla og kennslu í fleiri náms-
greinum en þá tíðkuðust hér á landi. Jón Sigurðsson forseti rit-
aði alllanga og snjalla grein í Ný félagsrit 1842 um skólamál á
íslandi. Þar er að finna kjama margs þess, sem síðar hefir verið