Kirkjuritið - 01.12.1956, Side 19
KIRKJAN OG FRELSISSTRÍÐ UNGVERJA 457
og settist þar að. En Mindszenty neitaði. Löngu síðar var honum
aftur boðið frelsi, ef hann héti því að prédika ekki né tala opin-
berlega. Þeim kosti vildi Mindszenty ekki heldur taka. Hann
krafðist þess að mega senda frá sér hirðisbréf, ferðast frjáls livert
sem hann vildi, „friðarprestar" kommúnista yrðu settir af og stjórn
páfa einráð í kaþólskum kirkjumálum. í lok októbermánaðar
þessa árs var hann leystur úr haldi af frelsissveitum Ungverja,
og setur þjóðin traust til hans fremur en til nokkurs annars manns.
Hann dvelst nú í sendiráði Bandaríkjanna í Ungverjalandi.
Lajos Ordass hefir áður verið getið í Kirkjuritinu. Hann varð
biskup yfir Lúterstrúarmönnum í Ungverjalandi árið 1945. —
Tveimur árum síðar var hann einn af leiðtogum kirkjuþingsins
í Lundi, er Heimssamband Lúterstrúarmanna var stofnað. Árið
eftir var hann leiddur eins og Mindszenty fyrir dómstólinn í
Búdapest og honum gefin að sök gjaldeyrissvik. Ekkert hið
minnsta sannaðist á hann, er saknæmt væri. En engu að síður
var hann dæmdur frá embætti og í 2 ára fangelsi.
Að fangavistinni lokinni vann hann fyrir sér og heimili sínu
með garðyrkju, vefnaði og saumum, en jók jafnframt kirkjusögu-
þekking sína. Hóf hann fyrst rannsókn á kirkjusögu Vesturálfu.
En það þótti tortryggilegt. Þá sneri hann sér að kirkjusögu íslands
°g nam tungu vora. Las hann daglega í íslenzkri Biblíu og kynnti
sér einkum sálmakveðskap Hallgríms Péturssonar. Er mælt, að
hann hafi þegar þýtt á ungversku nokkra af Passíusálmum hans.
Stjórnarnefndarmenn Lúterska lieimssambandsins og Alkirkju-
raðsins hafa undanfarið unnið að því við stjórn Ungverjalands,
að lýst verði sakleysi Ordass og lionum aftur veitt biskupsem-
Eætti hans. Hefir stjórnin að lokum orðið við þeirri beiðni og
lúterska kirkjan á Ungverjalandi fengið honum aftur biskups-
vald.
I upphafi frelsisstríðs Ungverja barst rödd hans til vor á öld-
mn Ijósvakans:
„Leyfið mér að mæla til erlendra bræðra vorra á þeirra eigin
tungu. í Guðs nafni beini ég til yðar örfáum orðum, kæru trú-
bræður á Norðurlöndum, Danmörku, Finnlandi, íslandi, Noregi
°g Svíaríki. Á liðnum öldum höfum vér Ungverjar fengið að
29