Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1956, Page 20

Kirkjuritið - 01.12.1956, Page 20
458 KIRKJURITIÐ reyna mátt fyrirbæna yðar og kristilegs kærleika, sem þér hafið auðsýnt oss í verki. Fyr- ir nokkrum mánuðum voru nokkrir Norðurlandafulltrúar hér hjá oss, og vér kynnumst viðleitni þeirra til hjálpar Ungverjum til þess að koma á kirkjulegu frelsi. Nú hróp- um vér á yður, kæru trúbræð- ur, í nafni allrar ættjarðar vorrar. Stjórn Ungverjalands hefir nú lýst yfir hlutleysi lands- ins. Styðjið oss af öllum mætti, svo að hlutleysi vort verði við- urkennt og vér finnum leið- ina til frelsis. Vér þráum, að þjóð vor fái að lifa í Guðs- friði og í friði við allar þjóð- ir heims. Vér stöndum í dag gagnvart mörgum erfiðum vandamálum. Þjóðin hefir misst marga af beztu sonum sínum, og mörg heimili skortir nú fyrirvinnu. Margir eru sárir, og oss skortir lyf. Mörg hús vor eru lögð í rúst, og vér höfum beðið mikið veraldlegt tjón. Vér biðjum í nafni Krists: Komið oss til hjálpar, Með kirkjulegum samtökum reyn- um vér að gjöra allt, sem vér getum, til þess að hjálpa öllum bágstöddum. Blessun Guðs sé yfir öllum." Rödd þessa manns er nú aftur þögnuð að sinni. En von er til þess, að hann sé enn heill á lífi og limum. Bæði Alkirkjuráðið og Lúterska heimssambandið hafa komið miklum birgðum af matvælum og lyfjum til Búdapest og afhent þær söfnuðunum, og jafnframt er lialdið uppi stöðugri bænagerð fyrir öllum þeim, sem eiga að búa við ofbeldi og kúgun, hvar sem er í heiminum.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.