Kirkjuritið - 01.12.1956, Síða 27
Scra J)clur Zyrfingur Oddsson,
pró(asiur í Jivammi í Völum
Verið ekki hálfvolgir í áhuganum.
Verið brennandi í andanum.
Andlát séra Péturs Odds-
sonar 4. f. m. af slysförum hef-
ir vakið þungan harm í hugum
margra.
A bezta aldri hvarf hann
frá miklu og góðu starfi og un-
aðslegu heimili, konu sinni og
börnum, sem þörfnuðust svo
mjög forsjár hans og föðurum-
hyggju, hinu yngsta á fyrsta
ári.
Þó skal það fjarri að telja
harmatölur, það myndi hann
ekki sjálfur vilja. Hann unni
bjartsýni og gleði og vissi, að kristindómurinn á huggun í sár-
ustu sorgum.
En minningu hans og mynd skulum vér geyma djúpt í hjarta.
Hann var fæddur í Bolungarvík við ísafjarðardjúp 6. septem-
ber 1912, og voru foreldrar hans Oddur Guðmundsson verzlunar-
maður og Jósefína Bjarnadóttir kona hans. Hann var aðeins sjö
ara> þegar hann missti móður sína. Hann ólst upp við hafið, feg-
urð þess og blíðu, en einnig ógnþrunginn kraft við brimsorfna
strönd. Hann vissi um hætturnar, sem búnar voru veiku fari,
en lærði ungur að treysta vemarhendi Drottins. Fermingarfaðir
hans, Sigurgeir biskup, hafði sterk áhrif á hann til trúar, bjartr-
ar og fagnandi. Ungur gekk hann Kristi á hönd og varðveitti
alla æfi þá trú, að innsti kjarni tilverunnar væri kærleikur.