Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1956, Qupperneq 46

Kirkjuritið - 01.12.1956, Qupperneq 46
484 KIRKJURITIÐ mismun. Og það fer alveg eins um samanburðinn og fuglinn, sem ekki gat sett sig í spor liljunnar. Maðurinn jafnar sér alltaf við einhvern sér ólíkan, eða honum við sig. Smáfuglinn er skáldið, afvegaleiðandinn, eða það skáld- lega og táldræga í manninum. En hið skáldlega er eins og ræða fuglsins bæði satt og logið, skáldskapur og raunveruleiki. Satt er það, að mismun- ur á sér stað, og mætti margt um hann segja, en hitt er skáldskapur, að mestu skipti um mismuninn, hann sé undirrót allrar sorgar og gleði. Þetta eru helber ósannindi. Hinn áhyggjufulli fer síðar út í slikar öfgar í sínum áhyggjufulla samanburði, að hann gleymir því sakir mismunarins, að hann er maður. I örvæntingu sinni finnst honum hann vera svo ólíkur öðrum mönnum, að honum þykir sem hann sé jafnvel ekki maður. Rétt eins og smáfuglinn taldi liljuna vera svo ómerkilega, að það væri mikil spurning, hvort hún í sjálfu sér gæti kallast lilja. En áhyggjur sínar verja menn alltaf með þessu, sem þeim sýnist vera svo ákaflega skynsamlegt: Að maður krefjist svo sem ekki neins, sem sé óskynsamlegt, t. d. þess að vera fugl, lieldur aðeins þessa ákveðna hlutar að vera ekki það, sem maður er, jafn- vel þótt það, sem menn girnast, sýnist ákaflega lítilfjörlegt í annarra aug- um. Þegar nú samanburðurinn hefir líkt og fuglinn með flögri sínu fram og aftur æst upp girnd áhyggnanna og rifið hinn áhyggjufulla upp með rótum, eða með öðrum orðum komið honum til að hafna því að vera það, sem honum er ætlað að vera, já, þá getur í svipinn virzt, sem samanburð- urinn flytji hinn áhyggjufulla að hinu þráða marki. Að vísu kemur hann og sækir hann, en rétt eins og dauðinn sækir mann, því að hinn áhyggjufulli ferst á flugi vansælunnar. Hvað lærir hinn áhvggjufulli þá af liljunum? Hann lærir að láta sér nægja að vera maður og hafa engar áhyggjur út af þeim mismuni, sem mönnun- um er meðskapaður. Sören Kierkegaard. (G. k. ]>ýddi.) Helgun. Ungur stúdent stóð lengi hugfanginn á málverkasafni frammi fyrir mynd einni, sem bar vfirskriftina: „Maðurinn frá Galileu." Loks hvíslaði hann hrærður: „Ó, þú maður frá Galileu! Ég vil ganga þér á hönd. Og sé nokk- uð það í starfi þínu hér á jörðu, sem ég get lagt hönd að, getur þú treyst mér upp frá þessu!“

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.