Kirkjuritið - 01.06.1957, Blaðsíða 22
Vertu viðbúinn
'Uundrað ára minning Baden-'powell, lávarðar
Einn af merkustu mönnurn þessarar aldar er án efa Sir Bad-
en-Powell, lávarður, stofnandi skátahreyfingarinnar. Hann naut
þeirrar sjaldgæfu gleði brautryðjandans að sjá æskulýðshreyf-
ingu þá, er hann stofnaði, fara sigurför um löndin og verða
ungu fólki til mikillar blessunar.
í byrjun þessa árs voru 100 ár liðin frá fæðingu þessa merka
manns, og var þess minnzt með hátíðahöldum skáta um allan
heim. Baden-Powell var fæddur í Lundúnum 22. febrúar 1857.
Faðir hans var séra H. G. Baden-Powell, er var prófessor við
Oxford háskóla og frægur náttúrufræðingur, en móðir hans var
dóttir þekkts sjóliðsforingja, er einnig var kunnur náttúrufræð-
ingur.
Baden-Powell missti föður sinn ungur, en 12 ára gamall fékk
hann námsstyrk og stundaði nám við Charterhouse skólann,
fyrst í London og síðan í Godalming í nágrenni borgarinnar.
Sóttist honum námið vel og vann hylli kennara sinna og félaga
í skólanum, enda var hann bæði fjölhæfur og félagslyndur.
Tók hann virkan þátt í íþrótta og félagslífi skólans, en gaf sig
auk þess mjög að útilífi, og fór oft langar gönguferðir um ná-
grennið og veitti þá mörgu athygli, sem óvenjulegt var um
nemendur á hans aldri. í sumarleyfum fór hann oft í siglingar
með bræðrum sínum, meðfram ströndum Englands og lenti þá
í ýmsum ævintýrum, enda virtist ævintýraþráin honum í blóð
borin.
Námi sínu í Charterhouse skólanum lauk hann 19 ára gam-
all, og gekk þá í brezka herinn og var fyrst sendur til Ind-
lands. Næstu 20 árin var hann í her Breta og starfaði í hinum