Kirkjuritið - 01.06.1957, Blaðsíða 47
INNLENDAR FRETTIR
285
Sera Rögnvaldur Jónsson í Súðavík er nýkominn úr námsferð frá
Vesturheimi.
Séra Sigurður Norland í Hindisvík hefir þýtt kvæðið um Ólaf
Liljurós á ensku og flutt í bandaríska útvarpið í Keflavík. Hefir þess ver-
ið minnst lofsamlega í blöðum vestra.
Dr. Richard Reck, hinn mikli kristni og kirkjuvinur, varð sextugur
9. júni. Vinir lians kosta myndarlegt afmælisrit í því tilefni.
Séra Jón Skagan hefir verið skipaður æviskrárritari. Nýtt embætti.
Hefir séra Jón starfað undanfarin ár á skrifstofu ríkisféhirðis.
Kristileg námskeið fyrir börn og unglinga er nú haldin á vegum
þjóðkirkjunnar á Löngumýri í Skagafirði. Séra Bragi Friðriksson og fleiri
veita þeim forstöðu.
Jóhann O. Haraldsson, tónskáld frá Dagverðareyri og organleikari
við Möðruvallakirkju, var heiðraður á bænadaginn með því að eingöngu
voru leikin lög eftir hann við hátíðaguðsþjónustu þar. Fjölmenni var og
seg)a norðanblöðin, að messugerð þessi muni verða kirkjugestunum
minnisstæð.
Barnadeild Hringsins í Landspítalanum tók til starfa 19. júní. Er
þar náð miklum og merkilegum áfanga fyrir atorku kvenna.
Frú Guðríður Ólafsdóttir, ekkja séra Jóns Arasonar á Húsavík,
varð níræð 9. júní.
Guðstraust Og rnannúð, ræður og erindi eftir Brynjólf Magnússon,
Prest i Grindavík. — Þegar ég las prófarkir af bókinni, sást mér því
miður yfir prentvillu á 184. bls. 11. 1. a. n.: arðbærara les auðbærara.
Letta eru eigendur bókarinnar vinsamlega beðnir að leiðrétta.
Guðm. R. Olafsson úr Grindavík.
KIRKJURITIÐ
kemur út 10 sinnum á ári. — Verð kr. 35.00.
Afgreiðsla hjá Elísabetu Helgadóttur, Hringbraut 44. Sími 4776.