Kirkjuritið - 01.06.1957, Síða 23

Kirkjuritið - 01.06.1957, Síða 23
VERTU VIÐBÚINN 261 ýmsu nýlendum þeirra, bæði á Indlandi, í Afríku og á Möltu. Á þessum árum ferðaðist hann mikið, meðal annars til Ameriku. Hækkaði hann stöðugt í tign innan hersins, en beztan orð- stír gat hann sér í Búastríðinu svonefnda, er hann stjórnaði vöm Mafeking borgar. Eftir það var Baden- Powell talinn með- al snjöllustu herforingja Breta. Það var þó ekki herþjónustan eða starfið fyrir föðurlandið á þeim vettvangi, sem gerðu hann heimsfrægan, heldur starf hans fyrir æskulýðinn með stofnun skátafélagsskaparins. Mun hann alllengi hafa hugsað sér að stofna til félagsskapar fyrir drengi, þar sem heilbrigt útilíf væri einn höfuð þátturinn. En fyrstu tilraunina í þessa átt gerði hann sumarið 1907, á Brovnea eyju í Thames, en þar hafði hann safnað saman 20 drengjum úr ýmsum stéttum, er dvöldu þar í sumarbúðum um nokkurt skeið. í sumarbúðum þessum fóru fram leikir og íþróttir, sem miðuðu að því að örva athyglisgáfu drengjanna, þeir hugsuðu að öllu leyti um sig sjálfir og vöndust á að bjarga sér eftir beztu föngum. Einnig voru þeir æfðir í margskonar hjálparstarfi, til þess að efla sið- ferðisþroska þeirra og ábyrgðartilfinningu. Tilraunir þessar gáfust mjög vel og varð þetta upphaf skáta- felagsskaparins svonefnda, en ári síðar gaf hann út hina fyrstu skátabók. Brátt náði þessi hreyfing mikilli útbreiðslu og fékk fast félagsform. Árið 1910 fékk B. P. lausn frá herþjónustunni °g upp frá því helgaði hann skátastarfinu alla krafta sína. Leið ekki á löngu, áður en skátafélagsskapurinn varð mjög útbreidd- ur í Bretlandi bæði meðal pilta og stúlkna, og hefir síðan farið sigurför um öll lýðfrjáls lönd. Hingað til íslands barst hann 1912, og nú eru skátafélög pilta °g stúlkna starfandi í flestum kaupstöðum landsins. Hér er því félagsskapurinn svo kunnur, að óþarft mun vera að fjölyrða um hann, í einstökum atriðum. Nægir að tilfæra hér skataheitið, sem allir verða að vinna, sem í félagsskapinn ganga: „Ég lofa því að gera það, sem í mínu valdi stendur, fil þess að gera skyldu mína við Guð og ættjörðina og halda skátalögin." En í skátalögunum eru gefnar heilbrigðar lífsreglur,

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.