Kirkjuritið - 01.06.1957, Page 43

Kirkjuritið - 01.06.1957, Page 43
BÆKUK 281 En úrbótin er ekki minna virði en meinakönnunin, viðhorfið til hinna afvegaleiddu og bágstöddu. Hörmulegasti þátturinn finnst mér Útlagi. Sú saga er Ijót, sé hún sönn. Ekki ljótust af Bjama, söguhetjunni, þótt myrkur haturs hans sé nístandi ömurlegt. En glæpur þjóðfélagsins í garð hans er hroðalegur, — þótt hann væri efalaust blint óviljaverk. Breyttar og bættar ástæður munu sem betur fer vama því, eins og sakir standa, að sú saga endurtaki sig bókstaflega. En því miður getur alltaf hent sig, að við með skilningsleysi leggjum meiri eða minni fjötra á náungann, og eins <ið „betrunarvistin“ snúist, sakir misskilnings og ranglætis, upp í forherðing. Sennilega er svo Guði fyrir að þakka, að í dag er öllu meiri mannúð rikjandi á íslandi og betri aðbúð lögbrotamanna en í flestum löndum heims. Því þetta er öld hinna miklu ofsókna, — jafnvel pyndinga og réttar- morða. Og m. a. af því að við höfum daglega fregnir af slíku, er þessi bók tímabær og hollur boðskapur manns, sem hefir horft upp á marga þjáða menn, og veit, að þeir þarfnast skilnings sér til bjargar. G. Á. t-------------------------1 ------------j Erlenddr frcttir j-------------------- 4«——■———*—.—4 Diakonissuár. Víða um heim skortir nú hjúkrunarkonur og líknar- systur. Gerð hefir verið athyglisverð tilraun til þess að bæta nokkuð úr þessu í Vestur-Þýzkalandi. Þar hefir verið stofnað til svokallaðs „dia- konissuárs". Skorað er á ungar stúlkur að verja einu ári til starfa í sjúkra- húsum og elliheimilum og öðmm slíkum stöðum. Segir í einu ávarpinu um þetta: „Ekki geta allir gert þjónustu við bágstadda að ævistarfi sínu. En sérhverjum er fært að vera hér til fyrirmyndar í eitt ár.“ Sagt er, að þetta hafi þegar gefið góða raun. Aður ókunnar katakombur (neðanjarðargrafreitir) fundust fyrir fá- um mánuðum síðan í Bóm. Em þar margar eftirtektarverðar veggmyndir bá fyrstu öldum kristninnar. Pólkirkja. Stórþjóðimar keppa nú hver við aðra um að rannsaka Suð- urskautslöndin og leggja þau undir sig. Þar er að „byggjast“ sjötta heims- álfan. Bandaríkjamenn era þarna fremstir í flokki. Eitt af útbúnaði er „seglkirkja“, sem reist er á ísnum og prestur messar í á helgum dögum. Eylgir sögunni, að hún sé vel sótt hina lömgu og myrku vetrarmánuði.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.