Kirkjuritið - 01.04.1960, Side 15
KIRKJURITIÐ
157
ar hina trúuðu í Kristi. Hinzti tilgangur hans er afturhvarí
heimsins. Að fram ganga í ljósinu er að lifa samfélagið við Föð-
urinn og bræðurna. Og fyrir utan það, þá er aðeins myrkur.
Hver sem trú vor er, þá er þetta svo (I. Jóh. 1,1-7, sbr. 44,12
'16 og v. 20-21).
Sérhvert verk Jesú Krists á ævi hinnar jarðnesku þjónustu
hans er tákn um það ljós, sem komið er inn í heiminn, en þetta
takn verður enn ekki höndlað í dýpstu merkingu þess, nema
af þeim einum, sem trúaðir eru (Jóh. 2,11-14 til 11, 40). Þetta
er sér í lagi meining lækningar blinda mannsins; þessi líkam-
^ega lækning mun opna leiðina til lífsins í Guði (9,1-12 og
v. 35-38).
b) Ljósiö sem „dómur“.
I Jóhannesar guðspjalli er dómurinn ekki refsing, sem Guð
a einn eða annan hátt sendir að utan, heldur sá dómur, sem
^naðurinn kveður upp yfir sjálfum sér meö því aö vísa Ijósinu
a ^ug. Vilji Guðs, sem opinberast í Jesú Kristi, er vilji til að
frelsa (Jóh. 3,17 og 12,47). Eiginleiki ljóssins er að opinbera
Þnð, sem hulið var. Dómurinn er fólginn í því, að ljósið er
homið í heiminn, en mennirnir elskuðu myrkrið fremur en ljós-
lð, af því að verk þeirra voru vond (Jóh. 3,19, sbr. Hebr. 4,
12-13, um orðið, sem opinberar það, sem hulið hefur verið.
har sem Kristur er orðinn hold, sviptir hann burt öllum grím-
um).
Meðal þeirra, sem vísa ljósinu á bug, eru nokkrir, sem frá
barnæsku hafa þegið næringu orðsins, en viðurkenna það ekki,
t*egar það kemur til þeirra. Þá er það ekki Jesús, sem dæmir
Þá, heldur Ritningin sjálf (sbr. Jóh. 3,41-47 og 8,30-47 og
9,13-34). Synd þeirra er að segja „vér sjáum“, þegar hjarta
þeirra er forhert. Þeir hafa tekið myrkrið fram yfir ljósið.
heir flýja ekki aðeins ljósið, sem opinberar þeim, hvernig þeir
sjalfir eru og kynnir þá öðrum, heldur fela þeir ljósið fyrir
öðrum mönnum (Mt. 23,13). Þetta átti við um Gyðingana;
þetta á einnig við alla kristna menn, sem eru kristnir aðeins
aö nafninu til, sem aldrei hafa fæðzt inn í það líf Guðs, sem er
hærleikur (I. Jóh. 4, 7-11). Ég verð að vinna verk hans, er sendi
mig, meðan dagur er; nótt kemur, þegar enginn getur unnið
(Jóh. 9,4). Dagar Sonarins á jörðunni eru taldir, þannig eru