Kirkjuritið - 01.04.1960, Page 16

Kirkjuritið - 01.04.1960, Page 16
158 KIRKJURITIÐ einnig dagar heimsins taldir. Köllun Guðs snýst ávallt um dag- inn í dag, hún bíður ekki framlengingar til morguns (sbr. Hebr. 3,1-12, Jóh. 12, 35). Þetta felur vissulega í sér tvenns konar stefnumörkun: Að fram ganga í ljósinu er að hafa augun á Kristi, að fylgja hon- um, að láta hann fullkomna verk sitt í oss — þetta er að verða „ljóssins barn“. Að taka myrkrið fram yfir hann, er að hafna náð hans, að hafna samfélagi við Guð og bræðurna, að stíga niður í einmanaleika og nótt. c) Úrslitabaráttan (Jóh. 12, 31-33 og 17,1-5). Myrkrið, sem hylur jörðina meðan Jesús þjáist á krossinum (Mark. 15, 33, sbr. Matt. 27, 45), er tákn um hinn skammvinna sigur myrkrahöfðingjans. Það er líka stund úrslitabaráttunnar milli Ijóss og myrkurs. Á þeirri stundu er það opinberað, hvern- ig kærleikurinn er sterkari en hatrið, trúin sterkari en afneit- unin. Nóttin í Getsemane og Golgata fer á undan hinu ljóm- andi ljósi Páskanna. Hliðstæðu hins jarðneska dóms, þegar Jesús var fyrirdæmdur, sér Jóhannes í öðrum dómi, er fer fram í hinum himneska heimi, þar sem Faðirinn „réttlætir11 Soninn og þar sem Satan, hinum mikla ákæranda mannanna, er dæmdur dómur og honum er snarað út (Jóh. 12, 31 og 16,11). Héðan í frá höfum vér ,,talsmann“ hjá Föðurnum, hversu harð- lega svo sem Myrkrahöfðinginn kann að ganga fram í æði sínu á jörðunni. Því hann — Jesús Kristur sjálfur — er friðþæging fyrir syndir vorar og ekki aðeins fyrir vorar syndir, heldur og fyrir syndir alls heimsins (I. Jóh. 2,1-2). 3. Ríki Ijóssins (Op. 21, 22—26). Hinir heilögu eru kallaðir til að sjá þessa dýrð, sem Kristur hefur komið í og þeir hafa þegar hina fyrstu ávexti: Hið sanna ljós skín þegar (Jóh. 2, 8), en það mun aðeins verða fullkom- lega opinberað heiminum við komu Drottins, það er við end- urkomu hans. Þá mun sérhvert auga sjá hann, einnig þeir, sem stungu hann ((Op. 1,7). Dýrð hinnar nýju Jerúsalem er Guðs eigin dýrð. ... Dýrð Guðs er ljós hennar og lampi hennar er Lambið. Þar mnu engin nótt vera. Endurleysandi kærleikur

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.