Kirkjuritið - 01.04.1960, Side 24

Kirkjuritið - 01.04.1960, Side 24
Eilífðartrúin „Júppiter hlœr“. Fyrir fám árum var fluttur í íslenzka ríkisútvarpinu leikurinn „Júppiter hlær“ eftir enska skáldið Cronin, sem íslendingum er nú orðinn allvel kunnur af skáldsögunum Lyklar himnaríkis og Borgarvirki, er báðar hafa komið út í íslenzkri þýðingu. 1 þessu leikriti er sagt frá ungum lækni, sem er hreinn efn- ishyggjumaður og lítur á trúarbrögð sem blekkingu og hé- góma, er hann hæðist að og telur að engu hafandi. Samt sem áður vinnur þessi ungi maður svo að segja dag og nótt að alls konar vísindastörfum og uppgötvunum, er hann hyggur að verða megi mannkyninu til blessunar, og ann sér varla svefns eða matar vegna áhugans fyrir því að finna upp margs konar meðöl, sem læknað geti mein mannanna og linað þrautir þeirra. Án efa er þessi læknir ágætur og göfugur maður. En hann er með sama marki brenndur og fjöldi nútímamanna. Hvorki hefur hann komizt verulega í kynni við trúarbrögðin né skilið innsta kjarna þeirra. Segja má jafnframt, að hann hafi aldrei orðið fyrir þeirri reynslu, sem knúði hann til að standa and- spænis spurningunni miklu, sem einhvern tíma knýr að dyr- um hjá öllum, spurningu, sem vísindamönnum ætti þó sízt af öllu að vera framandi: Gátan um eðli lífsins, uppruna þess og örlög. Ástin kemur til sögunnar. Svo gerist það einn góðan veðurdag, að nýr aðstoðarlæknir kemur að taugalækningastofnun þeirri, sem læknirinn vinnur við. Þetta er ung og Ijómandi falleg stúlka, dóttir trúboða nokk- urs í Kína. Og þangað austur ætlar hún sér að fara eftir nokkra mánuði til að fórna lífi sínu við að líkna sjúkum og þjáðum í þessari fjarlægu heimsálfu. Vísindamanninum finnst þetta ákaflega hlægileg hugmynd, er hann heyrir hana segja frá þessu, og dregur hana sundur og saman í logandi háði. Þó fer svo, áður en langt um líður, að þau fá svo mikla ást hvort á öðru, að þau geta ekki hugsað sér að skilja. En með því að hann er ófáanlegur til að fylgJa

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.