Kirkjuritið - 01.04.1960, Side 36

Kirkjuritið - 01.04.1960, Side 36
178 KIRKJURITIÐ meðferðina á þeim undanfarið! Hvers konar auglýsing er það um kristindóminn. Eða ofbeldi sumra stórþjóða í garð þeirra smærri? Það nægir til að sýna oss, hvað allir menn geta orð- ið blindir í eigin sök. Og hvernig þeir geta ófrægt Guð og Krist, þótt þeir flaggi með nöfnum þeirra. Slíkar aðfarir ,,kristinna“ manna hafa unnið kirkjunni mest ógagn um allar aldir. Samt eru þær líkar bálkesti, sem þrátt fyrir allt varpar ljósi á hinn rétta veg, — veginn, sem á að fara og liggur í þveröfuga átt. Veginn til bræðralagsins, þar sem hvorki er hvítur eða svartur, þræll eða herra, — aðeins börn Guðs. Hví skyldum vér þegja við því, ef aðrir ófrægja Guð? Þar sem víðar eru þau verst „hin þöglu“ svik. En þegar oss blöskr- ar slíkt mest í fari annarra, þá er stundin til að horfa sér nær og spyrja oss sjálf í hverju vorir brestir eru fólgnir og hvaða vitni vér berum kristindóminum, ekki aðeins í orði, heldur líka í verki — hver á sínu sviði og í sínum söfnuði. Vandamál. Bæjarmenning vor, sem nú hefur að mestu leyst hina fornu „sveitamenningu“ af hólmi, er enn á gelgjuskeiði. Þetta sést að vonum á mörgu. í borgum nágrannalanda vorra er næstum undantekning að rekast á börn innan við fermingaraldur á aðalgötum, nema þá í fylgd með fullorðnum. Hér í höfuðstaðn- um ber hvað mest á 13—18 ára unglingum í hjarta borgarinn- ar að kvöldlagi. Reglum um útivist barna og unglinga í þétt- býlinu virðist ekki hlýtt sem skyldi. Sennilega kemur vangeta eða vanræksla heimilanna þar mest til sögu. En hér þarf að verða breyting á. Kráarlífið er ekki hollt óþroskuðum ungling' um. Vel sé Æskulýðsráði og öðrum aðilum, sem vinna gegn ,þvi- En það er ekki aðeins í tómstundum sínum á veturna, sem mörg börn og unglingar slangra lengur úti en þeim er til gæfu og menningar. Margir foreldrar í þéttbýlinu eru nú í miklum vanda staddir vegna barna sinna yfir sumartímann. Fyrú’ nokkrum áratugum sendu fjölmargir kaupstaðarbúar börn sin til sumardvalar á sveitaheimili. Á meðan meiri hluti þjóðar- innar bjó í sveitum, var líka möguleiki til að taka þar yið meginhluta kaupstaðarbarnanna. Nú er það lokuð leið, nema tiltölulega fáum kaupstaðarbörnum að komast á sveitaheimil1- Og margur unglingur á ekki kost á nema lítilli vinnu heima 1

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.