Kirkjuritið - 01.04.1960, Side 44

Kirkjuritið - 01.04.1960, Side 44
186 KIRKJURITIÐ og sagði: „Þið hljótið að hafa lifað eitthvað stórt og fagurt. Ég sé það á ykkur.“ Þessi brennandi áhugi sonar míns gladdi mig. Það voru þó ekki horfur á, að hann ætlaði að feta í fótspor feðra sinna og verða prestur. Báðir afar mínir, faðir minn og tveir bræður mínir höfðu gengið í þjónustu kirkjunnar. Elzti sonur minn, Daníel, hafði einnig fengið trúna í vöggugjöf og gekk beina leið inn í prestsstarfið. Clark var aftur efasemdamaður og virtist ekki hafa áhuga á hlutverki prestsins. „Ég ætla að brjóta þessa erfðavenju," sagði hann og brosti. „Ég ætla að verða málfærslumaður.“ Þetta var alls ekki á móti mínu skapi, því að ég þóttist verða þess var, að hann hefði góða hæfileika á þessu sviði. Ég sagði hið sama við hann og faðir minn hafði sagt við mig: „Ég vil auðvitað, að þú hugleiðir það vel, hvort þú vilt verða prestur eða ekki. Reyndu að gera þér grein fyrir styrkleika þinum og veikleika. Hugsaðu svo vel um, hvað þú vilt verða. Bið þú Guð að leiða þig á hinn rétta veg. Og fari svo, að köll- un þín, til að flytja Guðs orð, sé ekki sterk, þá skalt þú ekki hugsa til þess að verða prestur. Prestsköllunin á, að mínu áliti, að vera svo sterk, að enginn minnsti skuggi efasemda komist fyrir við hlið hennar.“ Ég veit ekki, hvenær Clark snerist hugur og hann hætti við að brjóta erfðavenjuna. En ég man vel, hvenær ég fékk að vita það, að hann hafði valið sér köllun prestsins. Árið 1931 hafði ég brugðið mér til Detroit, til að flytja þar nokkrar föstupré- dikanir. Þá kom Clark til borgarinnar til að vera hjá mér eina helgi. Eftir eina prédikun mína fórum við saman í kvikmyndahús. Á eftir borðuðum við svo miðdegisverð saman. Clark var fá- talaður. Hann hafði fyrir skömmu meitt sig á fæti í knatt- spyrnukappleik, og ég gerði ráð fyrir, að sársaukinn í fætinum væri ástæðan fyrir þessu fálæti. Það var ekki fyrr en við komum upp í herbergi okkar, að hann fór að tala. Hann talaði og talaði, og ég var hvað eftir annað kominn að því að biðja hann að hætta og fara að sofa; en ég hætti alltaf við það og hélt áfram að hlusta. Ég hafði sem sé veður af því, að hér væri eitthvað óvenjulegt á seyði, eitthvað, sem enn var ósagt. Og loksins kom það! Hann sagði

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.