Kirkjuritið - 01.11.1962, Blaðsíða 8

Kirkjuritið - 01.11.1962, Blaðsíða 8
Halldór Kristjánsson á Kirkjubóli: Gildi kirkjunnar Það verður naumast sagt að standi styr um íslenzka kirkju Lítið er um það að kirkjan verði fyrir beinum, opinberum árás- um, Jjó að stundum sé lireytt í liana ónotum. Hins eru mörg dæmi, að kirkjan á ítök í hugum almennings. Það sýnir frjáls stuðningur við kirkjubyggingar og ýmisleg rækt við gömlu sóknarkirkjuna m. a. Þó er það svo, að víða er ráðandi deyfð og tómlæti um kirkju- leg mál og kirkjulegt starf. Yíða er í raun og veru ekki um neitt safnaðarlíf að ræða. Það er eins og mönnum finnist að gagnvart kirkju sinni eigi þeir aðeins að vera þiggjendur og viðtakendur. Þar sé presturinn eini gjörandinn með aðstoð og fulltingi söngflokks eftir því, sem á stendur hverju sinni. Þó er }>að svo, að kirkjulegt starf og kirkjulíf er algjörlega misheppnað, ef ekki tekst að ná söfnuðinum inn í það, þannig að bann verði þátttakandi í því, sem er að gerast. Kirkjan er samfélag fólksins, þar sem hver og einn hefur hlutverki að gegna, þó að mismunandi sé. Menningarhlutverk kristinnar kirkju í sögu Islendinga eins og annarra vestrænna þjóða, orkar ekki tvímælis. Það var kristnin, sem gerði mönnum eiginlegt að líta á livern einasta mann sem guðsbarn með óþrjótandi möguleika til Jiroska. Það var liún sem gaf mönnum meðvitund um skyldur sínar gagO' vart liverjum einasta samferðamanni. Hún færði út hugsjón fóstbræðralagsins og gerði liana og skyldur þess almennar. Á þessum grundvelli kristinnar kirkju er nútíma þjóðfélag á Vesturlöndum byggt með almennri skattskyldu, almennn skólaskyldu á opinberan kostnað, víðtækum almennum trygg' ingum o. s. frv.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.