Kirkjuritið - 01.11.1962, Blaðsíða 25

Kirkjuritið - 01.11.1962, Blaðsíða 25
KIRKJURITIÐ 407 oss oft erfitt að leita eftir helgandi áhrifum og veita þeim inn á heimili vor. Bænin er einn af farvegum slíkra áhrifa og börnum er víðast livar kennt að hafa þær um hönd. En það er mikilvægt fyrir hvert það lieimili, þar sem kristinn andi á að ráða ríkjum, að fjölskyldan eigi sjálf sameiginlegar bæna- stundir sem oftast. Stutt borðbæn fyrir máltíð, þegar allir spenna greipar og hneigja höfuð, getur haft sitt að segja til að skapa helgandi andrúmsloft á heimilinu. Ekkert helgar heimilið eins og bænin, og það getur haft óafmáanleg áhrif á unga og gamla, þegar beðið er sameiginlega, Guði þakkaðar gjafir lians og honum flutt lofgjörð. Mér eru ógleymanlegar helgistundirnar við máltíðirnar á sænsku prestssetri, sem ég dvaldizt á nokkra daga liaustið 1959, og ég er sannfærður um, að þ ær liafa haft sín miklu áhrif á börnin og átt sinn mikla þátt í að skapa kristinn anda á heimilinu. Hvað getur skapað slíkan anda á heimilinu fremur en bænin? „Ég og mínir ætt- menn munum þjóna Drottni“, sagði hinn forni guðsmaður í Israel. Getum vér þjónað Drottni á heimilum vorum án þess að biðja og styðja oss þannig við þá liönd, sem er sterkari vorri eigin? Sjálfsagt hafa margir foreldrar hugsað eins og barnríkir for- eldrar, sem sögðu: „Eftir því sem börnunum fjölgaði, fund- um við, að við gátum ekki risið ein undir hlutverki okkar. Við hlutum að leita hjálpar Guðs“. Vér njótum allir beinna eða óbeinna kristinna áhrifa á heim- ilum vorum, en í önnum nútímalífsins, þegar allir eru að flýta ser, er ekki tími til bæna og oft er hætt við árekstrum og að heimilisfriðurinn spillist. Hinn kristni andi lieimilisins á fyrst °g fremst að sjást af þeim anda friðar og fyrirgefningar, sem þar ríkir. Heimilismenn taka hver öðrum sem bræðrum, taka tillit til annarra, umbera hverjir aðra og eru ætíð reiðubúnir að fyrirgefa liver öðrum. Skortir ekki einmitt á þetta á svo mörg- uni heimilum, og þurfum vér ekki einmitt að leiða bænina til básaetis á heimilum vorum, til þess að þau einkennist í raun °g sannleika af kristnum anda, anda friðar og fyrirgefningar, °g verði helgir staðir. Að sjálfsögðu er livergi eins auðsæ sú breyting, sem verður við tilkomu kristinna álirifa og í þeim þjóðfélögum, þar sem heiðnin ltefur verið ríkjandi afl. Til þ ess að sýna þær stór-

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.