Kirkjuritið - 01.11.1962, Side 37
KIRKJURITIÐ
419
formaður liins sænska prestafélags. Aðrir á pallinuni voru for-
maður danska prestafélagsins, séra Eilschou Holm, formaður
hins finnska, próf. Nikolainen, og undirritaður af íslendinga
hálfu. Nokkrir menn aðrir tóku einnig til ináls. Bar margt á
góma, t. d. námskeið til gagnkvæmrar kynningar á guðfræði-
legum og kirkjulegum hreyfingum, ,,sabbatsár“ presta, þ.e.a.s.
ársfrí á vissu millihili til dvalar í Gyðingalandi, prestaskipti
milli landanna, Danir eiga hús í Rómaborg, þar sem þeir töldu,
að aðrir norrænir prestar ættu einnig að geta dvalið tíma og
tíma. Dr. Hassler stakk upp á samnorrænu tímariti lianda
prestum. Undirritaður benti á það í umræðunum, að Færeyj-
ar liefðu þá sérstöðu, að Jieirra prestafélag ætti einnig að vera
aðili að hinum norrænu prestafundum sem sjálfstætt félag.
Nokkuð var komið inn á samstarf prestafélaganna við félagið
?,Norden“, og loks kom fram uppástunga um })að, að sérstök
prestaköll tækju upp sama siðinn og Jiau bæjarfélög, er ættu
sér sérstaka vinabæi í öðrum Norðurlöndum.
1 Jiessum umræðum var einnig rætt uni fyrirkoinulag liinna
norrænu prestafunda í framtíðinni, en millifundanefndin, sem
skipuð er fulltrúum frá öllum norrænum prestafélögum, hefur
á prjónunum nýjar tillögur um Jiað efni. Verður það og lilut-
verk Jieirrar nefndar, ásamt félagsstjórnunum, að vinsa úr hin-
um mörgu liugmyndum, og álcveða, liverjar séu líklegastar til
að verða til gagns, og Jiá livernig. Hvað fundina sjálfa snertir,
má t. d. búast við því, að þeir færist meira í það liorf að verða
að hálfu prestskvennafundir, svo framarlega sem samtök þeirra
fallast á Jiá samvinnu. Bæði í gamni og alvöru hefur einnig
verið rætt um sérstakar ráðstafanir vegna prestsbarnanna, sem
oft eru í för með foreldrum sínum um Jmð leyti árs, sem
fundirnir eru haldnir, ef sumarleyfið er sameinað ferðinni til
norræna fundarins.
Fundurinn stóð frá 13.—16. ágúst, að háðum dögum með-
töldum. — Þegar liann hófst, var lokið vist okkar séra Þorgríms
á Park Hótel, og fluttum við þá á einkalieimili í bænum, og
var síöur en svo í kot vísað. Nutum við allir liinnar beztu
gestrisni. Undirritaður gisti lijá Anders Jahre, sem býr uppi á
A.snum, er gnæfir yfir landið umhverfis, eins og Jalire sjálfur
gnæfir yfir athafnalíf Sandafjarðar. Höfðu þau hjón bæði
heimsótt ísland, og kváðust eiga liéðan hinar ánægjulegustu