Kirkjuritið - 01.11.1962, Page 12

Kirkjuritið - 01.11.1962, Page 12
KIRKJURITIÐ 394 Eitt ættum við að geta verið sammála um. Leitin að sann- leikanum er þroskandi. 1 þeirri leit þroskast andi mannsins við að meta gildi kenninganna. Þessi staðreynd fellur ágæt- lega við þá trú, að einmitt óvissan, glíman við ráðgátumar, leitin að sannleikanum, feli í sér þroskaskilyrði mannsandans, eða hvernig væri það líf, þar sem maðurinn þyrfti ekki að styðjast við eigin dómgreind? Það, sem við vitum og skiljum í þessum efnum virðist því falla vel við þá skoðun, að heppi- legast sé fyrir andlegan þroska manns á þessu stigi, að búa við ráðgátui og óvissu, að vissu marki. Menn verða sjálfir að reikna sín dæmi, ef þeir eiga að þroskast og vaxa af þeim. Það er Ijóst, að almennt em menn hlynntir kirkjunni, viður- kenna þýðingu hennar fyrir sig og óska lienni góðs. Kirkjan á líka mikið hlutverk á líðandi stundu. En söfnuðir landsins mættu gera sér betur ljóst, sumir hverjir, að þar eiga þeir líka hlutverki að gegna. Þeim er fenginn prestur til fomstu og þjón- ustu, en þeir eiga að vera með honum í starfi. Vitanlega verða prestarnir að leita eftir því samstarfi. Vera má, að kirkjan þurfi í því sambandi að endurskoða starfshætti sína að meira eða minna leyti. Eu það er nauðsyn almennings að þetta samstarf takist. GAMLIR HÚSGANGAR Varaðu þig á veginum víða er hann sleypur, dimrna fer að deginum, dettur sá, er hleypur. Þá kalt er úti og kvölda fer, kati nóttin liótar, œrnar mínar eru mér oft til sálubótar.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.