Kirkjuritið - 01.11.1962, Blaðsíða 47
KIRKJURITIÐ
ildarrit að ræða og merka mannlýs-
ingu, sem seint fyrnist.
Richard Beck:
ÞÆTTIR ÚR MINNISSTÆÐRI
ÍSLANDSFERÐ
Winnipeg 1962.
Þetta er ferðasaga höfundar, er
hann kom heiin til ættlands síns á
háskólaliátíðinni og naut þeirrar
sæmdar að vera kjörinn heiðurs-
doktor af heimspekideildinni. Sú
viðurkenning var vissulega makleg
sakir frábærrar elsku og ræktarsemi
429
þessa íslendings í fjarlægri heims-
álfu marga síðustu áratugi. Ekkert
tækifæri hefur hann látið ónotað til
að kynna land og sögu feðra sinna.
Nótt og nýtan dag hefur hann hlátt
áfram hamast við að sýna og sanna
ást 8Ína á öllu því hezta sem ísland
á. Og:
„Þakkir færa, foldin kæra,
fyrir allt, sem gafstu mér“.
eins og segir í inngangskvæði hækl-
ingsins. Þessi ástarylur vermir að
kalla hverja línu, sem R. Beck skrif-
ar, einnig í þessu kveri.
G. Á.
,,Gutenbergsbiblían“