Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1964, Blaðsíða 22

Kirkjuritið - 01.01.1964, Blaðsíða 22
Séra Magruis GuSmundsson, Setborgi: Evangeliska kirkjan í Austurríki Áttunda sunnudaginn eftir trinitatis árið 1522 prédikaði Páll Speratus, einn hinna dyggu aðstoðarmanna Marteins Lúthers, í kirkju heilags Stefáns í Vín, en svo nefnist dómkirkja róm- versk-kaþólskra í borginni. Speratus var á ferð í liöfxiðborg Austurríkis og notaði tækifærið til að vinna fyrir málefni lútli- ersku siðbótarinnar. Hann flutti ósvikinn evangeliskan boðskap og sagði meðal annars, að sérhver kristinn maður hlyti og ætti að lifa Guði til dýrðar. En Speratus lagði á það megináherzlu, að syndarinn réttlættist ekki fyrir Guði af góðum verkum, heldur af trúnni einni saman. Speratus er ekki aðeins kunnur sem andríkur pré- dikari, lieldur einnig sem höfundur liins volduga siðbótarsálms: „Frá liimni háum er sonur Guðs kominn til vor“. Þessi skorinorða prédikun lians í dómkirkjunni í Vín hafði tilætluð álirif. Rit Lútliers urðu mjög eftirsótt og mikið lesin í Vín og nágrenni. Það olli svo óróa og kvíða lijá kirkjustjórn rómversk kaþólsku kirkjunnar. Rúmu ári eftir að Speratus flutti prédikun sína bannaði Ferdinand keisari 1. dreifingu og lestur rita Lúthers í Austurríki. Ekki leið á löngu, unz trúvillingar voru brenndir á báli í landinu. Hér er átakanleg lýsing sjónarvotts á einum slíkum harmleik. Klukkan er sjö að morgni í litla landamærabænum Schárding. Hópur manna stendur umhverfis bálköstinn, og dauðakyrrð ríkir. Þarna keinur píslarvotturinn, rólegur og auðmjúkur í fasi, en bjart er yfir svip hans. Einn af vinum hans hvíslar nokkrum huggunarorðum að lionum. Þá hrópar liann: „Ó, Kristur, þú verður að þjást með mér. Ó, Kristur, þú verður að hughreysta mig, annars er ég glataður“. Þá kveður hann sína nánustu og áminnir þá um að hefna sín ekki á neinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.